Hoppa yfir valmynd
9. október 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 595/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 595/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23070123

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 21. júlí 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. júlí 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 6. júlí 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 13 daga dvöl frá 20. ágúst 2023 til 1. september 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. júlí 2023. Hinn 21. júlí 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt fylgigögnum. Frekari gögn og skýringar bárust frá kæranda 24. og 26. júlí 2023. Við meðferð málsins fyrir kærunefnd kom í ljós að kærandi hefði lagt fram nýja umsókn um vegabréfsáritun, dags. 15. ágúst 2023, sem hefði síðar verið samþykkt af Útlendingastofnun. Kærunefnd sendi kæranda tölvubréf dags. 3. október 2023 þar sem hann var upplýstur um að útgefin vegabréfsáritun hefði ekki áhrif á fyrirliggjandi kærumál þar sem um aðskilin stjórnsýslumál væri að ræða. Í ljósi aðstæðna var kæranda veittur þriggja daga frestur til þess að afturkalla stjórnsýslukæru en hann brást ekki við erindi kærunefndar.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru vísar kærandi til skýringa sem færðar séu fyrir niðurstöðu málsins hjá Útlendingastofnun, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum dvalar. Kærandi sé þessu ósammála og vísar til þess að hann muni dveljast í skemmtiferðarskipi á meðan ferðinni stendur. Þar að auki vísi ákvörðun Útlendingastofnunar til ferðasjúkratryggingar sem kærandi hafði ekki lagt fram. Meðal fylgigagna með kæru séu ferðasjúkratrygging ásamt upplýsingum um herbergisbókun um borð í skemmtiferðarskipi. 

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauki 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúa ekki aftur til heimalands, sbr. fyrrgreind 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 2 og 16 vegna synjunar á umsókn, þ.e. ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar ásamt því að ekki voru færðar sönnur á handhöfn viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum Útlendingastofnunar óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Samkvæmt gögnum málsins fór meðferð umsóknarinnar fram hjá Utanríkisráðuneytinu en hún var lögð inn hjá VFS skrifstofunni í Manchester, sem starfar í umboði íslenska sendiráðsins í Lundúnum, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hans hjá utanríkisþjónustunni er rakin. Þar kemur fram að mælt sé með því að umsókn kæranda um vegabréfsáritun verði synjað þar sem kærandi hafi ekki lagt fram tiltekin gögn sem utanríkisþjónustan hafi óskað eftir þrátt fyrir að hafa fengið fimm daga frest til þess. Gögnin sem um ræðir séu í fyrsta lagi fullnægjandi ferðasjúkratrygging, í öðru lagi ferðaáætlun og gögn sem sýni fram á hvert innan Schengen-svæðisins sigling kæranda myndi halda, og loks gögn sem sýni fram á gistingar og samgöngur á Íslandi. Líkt og komið hefur fram lagði kærandi fram ferðasjúkratryggingu hjá kærunefnd og færði fram þær skýringar að með bókun sinni í skemmtisiglingu hafi hann bókað herbergi um borð í skipinu þar sem hann hugðist gista á meðan ferðalaginu stæði. Kærandi hefur ekki lagt fram nánari ferðaáætlun og gögn sem sýna fram á hvert innan Schengen-svæðisins kærandi myndi ferðast. Líkt og þegar hefur komið fram byggðist ákvörðun Útlendingastofnun á tveimur forsendum, þ.e. 2. og 16. tölul. í stöðluðu synjunarformi, en hvort um sig væri næg ástæða til þess að synja umsókn kæranda, sbr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Kærandi hefur nú lagt fram gögn og skýringar sem hnekkir forsendu Útlendingastofnunar varðandi 16. tölul. en forsenda stofnunarinnar varðandi ferðaáætlun til Íslands og Schengen-svæðisins, með vísan til 2. tölul., stendur óhögguð. Að mati kærunefndar eru því framkomin gögn og málsástæður kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun. Jafnframt er athygli vakin á því að samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun, dags. 2. október 2023, hefur kærandi lagt fram nýja umsókn um vegabréfsáritun þar sem fylgiskjöl voru metin fullnægjandi og umsóknin verið samþykkt.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að ekki væru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sbr. ii-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta