Ráðstefna um málefni barna á morgun
Á morgun 8. maí stendur velferðarráðuneytið fyrir opinni ráðstefnu um málefni barna á Hilton Reykjavík Nordica. Yfirskrift hennar er „Snemmtæk íhlutun í málefnum barna á Íslandi“ eða SIMBI. Stefnt er að því að ráðstefnan verði hvetjandi upphaf þeirrar vinnu sem stjórnvöld munu leggja áherslu á í málefnum barna á næstunni. Fyrirlesarar eru bæði innlendir og erlendir með víðtæka þekkingu á málefnum barna. Auk þess að hlýða á fyrirlestra er ætlunin að öllum gefist færi á að taka þátt í umræðum og koma með ábendingar um forgangsröðun. Aðgangur er ókeypis. Skráning, dagskrá og allar nánari upplýsingar eru á www.radstefna.is.
Nú hafa þegar eru rúmleg 300 þátttakendur búnir að skrá sig. Örfá sæti eru laus.
Streymt verður frá ráðstefnunni og er streymið aðgengilegt á slóðinni www.radstefna.is.