Breytingar á staðgreiðslu um áramót
Um áramótin mun síðari áfangi breytinga á tekjuskatti einstaklinga taka gildi. Þessi seinni áfangi felur í sér lækkun á grunnþrepi tekjuskatts um 3,60 prósentustig og hækkun á miðþrepi tekjuskatts um 0,75 prósentustig. Nýju skattprósenturnar verða því 17% í grunnþrepi og 23,5% í miðþrepi. Við prósenturnar bætist síðan útsvarsprósenta sveitarfélaga.
Samkvæmt lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt skal fjárhæð persónuafsláttar taka breytingu út frá margfeldi breytingar vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði og hlutfalls nýrrar grunnprósentu tekjuskatts einstaklinga af grunnprósentu ársins áður, að útsvarsprósentu meðtalinni. Þá skulu þrepamörk tekjuskatts vera uppreiknuð í hlutfalli við hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði.
Á grundvelli þess eru skatthlutföll og þrepamörk árið 2021 eftirfarandi.
2021 |
||
Prósenta í 1. þrepi: |
31,45% (þar af 14,45% útsvar) |
|
Prósenta í 2. þrepi: |
37,95% (þar af 14,45% útsvar) |
|
Prósenta í 3. þrepi: |
46,25% (þar af 14,45% útsvar) |
|
|
Á ári |
Á mánuði |
Persónuafsláttur: |
609.509 |
50.792 |
Þrepamörk milli 1. og 2. þreps: |
4.188.211 |
349.018 |
Þrepamörk milli 2. og 3. þreps: |
11.758.159 |
979.847 |
Meðalútsvar á árinu 2021 verður samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarfélaga 14,45% sem er hækkun um 0,01 prósentustig frá fyrra ári. Við staðgreiðslu ber launagreiðendum að miða við meðalútsvarshlutfallið. Af 69 sveitarfélögum munu 53 leggja á hámarksútsvar. Fjögur sveitarfélög munu leggja á lágmarksútsvar.
Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða 168.230 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldagreiðslu launþega í lífeyrissjóð. Skattleysismörkin voru 162.398 kr. á mánuði árið 2020 og því er hækkun skattleysismarka 3,6% sem er í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs.
Í næstu töflu má sjá þróun helstu breyta tekjuskattskerfisins yfir þrjú ár.
Skatthlutföll, persónuafsláttur, þrepamörk og skattleysismörk í staðgreiðslu frá 2019 |
||||||
Skatthlutföll tekjuskatts til ríkis og sveitarfélaga (%) |
2019 |
2020 |
2021 |
|||
Tekjuskattur til ríkis |
|
|
|
|||
1. þrep |
22,50% |
20,60% |
17,00% |
|||
2. þrep |
31,80% |
22,75% |
23,50% |
|||
3. þrep |
|
31,80% |
31,80% |
|||
Meðalskatthlutfall útsvars (%) |
14,44% |
14,44% |
14,45% |
|||
Skatthlutfall samtals í staðgreiðslu (%) |
|
|
|
|||
1. þrep |
36,94% |
35,04% |
31,45% |
|||
2. þrep |
46,24% |
37,19% |
37,95% |
|||
3. þrep |
. |
46,24% |
46,25% |
|||
Persónuafsláttur (kr./mánuði) |
|
|
|
|||
Persónuafsláttur |
56.447 |
54.628 |
50.792 |
|||
Þrepamörk á mánuði (kr./mán) |
|
|
|
|||
Neðri mörk |
927.087 |
336.916 |
349.018 |
|||
Efri mörk |
. |
945.873 |
979.847 |
|||
Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars í staðgreiðslu (kr./mán) |
|
|
|
|||
Án tillits til frádráttar 4% iðgjalds |
152.807 |
155.902 |
161.501 |
|||
Með tilliti til frádráttar 4% iðgjalds |
159.174 |
162.398 |
168.230 |
|||
Skattleysismörk tekjuskatts til ríkissjóðs (kr./mán) |
|
|
|
|||
Án tillits til frádráttar 4% iðgjalds |
250.876 |
265.184 |
298.776 |
|||
Með tilliti til frádráttar 4% iðgjalds |
261.329 |
276.233 |
311.225 |
Tryggingagjald
Í ársbyrjun 2021 mun skatthlutfall almenns tryggingagjalds lækka um 0,25 prósentustig, úr 4,9% í 4,65%. Er sú aðgerð tímabundin í eitt ár og hluti af aðgerðarpakka stjórnvalda vegna efnahagsáhrifa kórónuveirunnar.
Tryggingagjald í heild lækkar úr 6,35% í 6,10%, sbr. meðfylgjandi töflu.
Ár | 2020 | 2021 |
Almennt tryggingagjald |
4,90% |
4,65% |
Atvinnutryggingagjald |
1,35% |
1,35% |
Gjald í Ábyrgðarsjóð launa vegna gjaldþrota |
0,05% |
0,05% |
Markaðsgjald |
0,05% |
0,05% |
Tryggingagjald, samtals |
6,35% |
6,10% |