Hoppa yfir valmynd
8. maí 2019 Utanríkisráðuneytið

Umsóknarfrestur um ungmennaráð heimsmarkmiðanna að renna út

Ungmennaráðið með ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Ljósmynd: forsætisráðuneyti - mynd

Eftir fáeina daga rennur út umsóknarfrestur um fulltrúa í ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Ungmennaráðið tók fyrst til starfa í apríl á síðasta ári en nú er komið að árlegri endurnýjun fulltrúa. Opnað var fyrir umsóknir í síðasta mánuði á vef Stjórnarráðsins og óskað er eftir umsóknum frá ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí, sem er næstkomandi mánudagur.

Tólf fulltrúar verða valdir í ráðið. Þeir koma til með að fræðast og fjalla um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna ásamt því að vinna og miðla gagnvirku efni á samfélagsmiðlum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Ungmennaráðið veitir stjórnvöldum, í gegnum verkefnastjórn heimsmarkmiðanna, aðhald og ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna ásamt því að funda árlega með ríkisstjórn.

Ungmennaráðið á fundi sex sinnum á ári en þar að auki hefur starfandi ungmennaráð tekið þátt í fjölmörgum viðburðum á síðastliðnu ári. Má þar meðal annars nefna þátttöku í Hringborði Norðurslóða í Hörpu, heimsþingi kvenleiðtoga, friðarráðstefnu Höfða friðarseturs og hátíðarhöldum í tengslum við fullveldisafmæli Íslands þann 1. desember síðastliðinn.

Stofnun ungmennaráðsins er í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um að framfylgja skuli ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, meðal annars um aukin áhrif barna í samfélaginu. Eitt af meginstefum heimsmarkmiðanna er jafnframt samvinna hagsmunaaðila. Með stofnun ungmennaráðs um heimsmarkmiðin er leitast við að gefa ungmennum vettvang til að vekja athygli á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun og skapa þannig jafningjum tækifæri til að láta rödd sína heyrast um fyrrgreind málefni.

Fyrir ári þegar auglýst var í fyrsta sinn eftir fulltrúum í ungmennaráði var mikill áhugi meðal ungmenna í landinu á þátttöku. Þá bárust rúmlega 140 umsóknir um setu í ráðinu.

Umsóknarform fyrir ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

Nánari upplýsingar um heimsmarkmiðin má finna á heimsmarkmidin.is

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta