Hoppa yfir valmynd
21. september 2017 Dómsmálaráðuneytið

Listabókstafir og heiti stjórnmálasamtaka

Dómsmálaráðuneytið heldur skrá um listabókstafi stjórnmálasamtaka sem buðu fram lista við síðustu alþingiskosningar. Hyggist stjórnmálasamtök sem hafa ekki skráðan listabókstaf bjóða fram lista við alþingiskosningarnar 28. október skal það tilkynnt dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en þremur sólarhringum áður en framboðsfrestur rennur út, þ.e. eigi síðar en kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 10. október 2017.

Tilkynningin skal undirrituð af að minnsta kosti 300 kjósendum. Hún skal dagsett og skal tilgreina nafn kjósanda, kennitölu hans og heimili.

Heiti nýrra stjórnmálasamtaka má ekki vera þannig að ætla megi að villst verði á því og heiti samtaka sem eru á skrá. Ráðuneytið ákveður bókstaf nýrra samtaka að fengnum óskum þeirra og með hliðsjón af listabókstöfum annarra stjórnmálasamtaka í undangengnum kosningum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta