Brautskráningarhlutfall hækkar um 36%
„Það er markmið okkar að vinna gegn brotthvarfi úr framhaldsskólunum og fjölga útskrifuðum og því eru þetta frábærar fréttir. Ég fagna árangri framhaldsskólanna í þessu verkefni, það er samfélagslega mikilvægt að efla menntun í landinu og liður í því er að hækka menntunarstig þjóðarinnar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
60% nýnema brautskráðust innan fjögurra ára
Alls höfðu 60% þeirra 4.359 nýnema sem hófu nám á framhaldsskólastigi árið 2015 útskrifast árið 2019. Þá höfðu 23% hætt námi eða tekið sér tímabundið hlé en 17% voru enn í námi án þess að hafa útskrifast. Brautskráningarhlutfall (nýnema sem brautskráðust innan fjögurra ára) hækkaði umtalsvert frá 2018 þegar það var 55,6%, enda brautskráðust stórir hópar nemenda með stúdentspróf bæði af þriggja ára og fjögurra ára brautum á þessu tímabili.
Tölur Hagstofunnar mæla árgangsbrotthvarf, þar er nýnemum í dagskóla að hausti er fylgt eftir og staðan tekin eftir fjögur ár, sex ár og sjö ár. Talnaefni Hagstofunnar um brautskráningarhlutfall og brotthvarf á framhaldsskólastigi nær aftur til nýnema ársins 1995.
Staða innflytjenda
Hagstofan birtir nú í fyrsta skipti tölur um brautskráningarhlutfall og brotthvarf á framhaldsskólastigi eftir aldri innflytjenda. Á meðal innflytjenda, sem fluttust til landsins fyrir sjö ára aldur, var brautskráningarhlutfallið 57,8% og 50% á meðal annarrar kynslóðar innflytjenda. Innflytjendur sem fluttust til landsins sjö ára eða eldri standa verr að vígi, 32% þeirra höfðu brautskráðst. Af þeim sem ekki teljast til innflytjenda höfðu 62,1% nýnema brautskráðst innan fjögurra ára.
Staða nemenda í starfsnámi
Ef litið er á nýnema í starfsnámi haustið 2015 höfðu 40,3% þeirra brautskráðst innan fjögurra ára. Hlutfallið var hærra á meðal innflytjenda en 44,4% þeirra sem fluttust til landsins fyrir sjö ára aldur höfðu brautskráðst og 43,0% þeirra sem voru sjö ára eða eldri við flutning til landsins. Hins vegar var brautskráningarhlutfall innflytjenda lægra en allra nýnema úr bóknámi, sérstaklega innflytjenda sem voru sjö ára eða eldri við flutning til Íslands.
Áréttað skal að aðeins 44 nýnemar haustið 2015 tilheyrðu annarri kynslóð innflytjenda og 45 voru innflytjendur sem fluttust til landsins fyrir sjö ára aldur. Því má líta svo á að niðurstöður gefi vísbendingar um stöðu mála þar sem hver einstaklingur vegur þungt í tölunum og sveiflur í hlutfallstölum því miklar.