CLF á Íslandi: Áframhaldandi uppbygging í Úganda í þágu stúlkna
Félagasamtökin CLF á Íslandi hafa fengið vilyrði fyrir styrk frá utanríkisráðuneytinu til að halda áfram uppbyggingu á Candle Light High School í Mukono héraði í Úganda. Skólinn býður ungum stúlkum sem eiga erfitt uppdráttar upp á nám þar sem áhersla er lögð á öruggt umhverfi, sálrænan stuðning og valdeflingu.
CLF á Íslandi hefur áralanga reynslu af stuðningi við skólastarf í landinu og hefur styrkt verkmenntaskóla Candle Light Foundation í sama skólahúsnæði í Úganda þar sem ungum stúlkum stendur til boða verknám sem er sniðið að félagslegum og efnahagslegum aðstæðum. Markmið CLF á Íslandi hefur frá upphafi verið að stuðla að menntun og að efla hæfni stúlkna í Úganda til að standa á eigin fótum, efla atvinnumöguleika þeirra og framtíðartækifæri.
Verkefnið snýst um áframhaldandi uppbyggingu Candle Light High School í Úganda en fjármagn frá utanríkisráðuneytinu verður meðal ananrs nýtt til að byggja hús sem mun hýsa tvær kennslustofur auk skólabókasafns og rannsóknarstofu. Rosette Nabuuma, framkvæmdarstýra CLF í Úganda, segir að stækkun skólans hjálpi samtökunum að mæta þörf stúlkna í nærsamfélaginu til að öðlast menntun og muni einnig bæta skólaumhverfið og gæði náms til muna.
Með byggingunni gefst færi á að veita yfir 100 stúlkum til viðbótar tækifæri til að stunda nám í skólanum. Áætlað er að hægt verði að taka á móti rúmlega 100 nýjum nemendum eða um 200 nemendum í heildina.
Styrkurinn er hluti af samstarfi utanríkisráðuneytisins við íslensk félagasamtök í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Opið er fyrir umsóknir til mannúðaraðstoðar allt árið svo lengi sem fjárheimildir leyfa. Allar nánari upplýsingar má finna hér.