Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 68/2024-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 68/2024

Mánudaginn 29. apríl 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. febrúar 2024, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2024, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 11. desember 2023. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2024, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. febrúar 2024. Með bréfi, dags. 8. febrúar 2024, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 18. mars 2024 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. mars 2024. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa farið sjálfur á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og tilkynnt um vinnu í fjóra daga, frá 17. til 20. júlí 2023. Honum hafi verið sagt að það myndi ekki hafa nein áhrif og að munnleg tilkynning hans myndi jafngilda skriflegri. Kærandi hafi treyst starfsfólki Vinnumálastofnunar sem eigi að vera fagmenn. Hann eigi ekki fjölskyldu eða vini hérlendis og enginn geti aðstoðað hann. Kærandi þurfi að borga leigu og eiga fyrir mat. Hann muni missa húsnæði sitt og enda á götunni vegna misræmis í störfum starfsmanna Vinnumálastofnunar. Hann sé duglegur og sé að leita sér að vinnu. Kærandi hafi misst vinnuna þar sem vinnuveitandi hans hafi ekki lengur haft þörf fyrir hann, en það sé ekki honum að kenna.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 3. nóvember 2022. Með erindi, dags. 14. desember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kærandi hafi fengið greiðslur frá 1. desember 2022 til 31. júlí 2023.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með óútskýrðar tekjur að fjárhæð 88.136 kr. í júlí 2023. Með erindi, dags. 27. nóvember 2023, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum kæranda og gögnum sem vörðuðu það tímabil og hafi kæranda verið veittur sjö daga frestur til að skila inn umbeðnum gögnum. Engin gögn hafi borist frá kæranda innan frests.

Kærandi hafi aftur sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta til Vinnumálastofnunar með umsókn, dags. 11. desember 2023. Með erindi, dags. 19. desember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. vegna ótilkynntra tekna. Kæranda hafi jafnframt verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tekna í júlí 2023 og hafi ofgreiðslan numið 2.468 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Með erindi, dags. 11. janúar 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100% en með tilliti til ótekins biðtíma samkvæmt viðurlagaákvörðun 19. desember 2023 þyrfti hann að bíða í tvo mánuði eftir greiðslum. Þann sama dag og ákvörðun hafi verið birt kæranda hafi hann skilað Excel skjali merkt „Launasedill juli 23“ á Mínum síðum.

Í kjölfar þess að umbeðin gögn hafi borist Vinnumálastofnun hafi kæranda verið tilkynnt með erindi, dags. 11. janúar 2024, að þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefði haft áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta væri ákvörðun stofnunarinnar staðfest. Í íslenskri útgáfu bréfsins hafi verið reifaðar ástæður þess að réttur hans til greiðslna félli niður í tvo mánuði og hafi honum verið tilkynnt að það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli hans, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist í máli hans.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 7. febrúar 2024. Í kæru hafi kærandi greint frá því að hann hefði komið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og tilkynnt um vinnu, samtals fjóra daga, frá 17. til 20. júlí 2023. Hann hefði verið upplýstur um að þetta myndi ekki hafa nein áhrif og að munnleg tilkynning jafngildi skriflegri. Hann teldi að ósamræmi í störfum stafsmanna Vinnumálastofnunar væri um að kenna og að hann ætti ekki að líða fyrir það.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, þess efnis að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur sínar frá B. Jafnframt sé kærð sú ákvörðun stofnunarinnar að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til kæranda, að heildarfjárhæð 2.468 kr.

Ágreiningur í máli þessu snúi meðal annars að því hvort kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um vinnu í júlí 2023. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem gætu haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. hafi kæranda borið að tilkynna Vinnumálastofnun um umræddar tekjur. Kærandi kveðst hafa tilkynnt stofnuninni að hann hefði hafið störf í júlí 2023. Vinnumálastofnun þyki rétt að ítreka að öll þau samskipti sem starfsmenn stofnunarinnar eigi við atvinnuleitendur séu skráð í kerfum stofnunarinnar af viðkomandi starfsmanni, þar á meðal öll símtöl og komur á þjónustuskrifstofur. Í gögnum málsins sé hvergi að sjá að kærandi hafi haft samband við Vinnumálastofnun vegna vinnu sinnar fyrr en 22. ágúst 2023. Þá árétti Vinnumálastofnun að það sé ein meginskylda atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi í því skyni finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar, en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dagsfyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi hann látið stofnunina vita að hann hefði hafið störf 1. ágúst 2023 þegar hann hafi komið á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar 22. ágúst til að fá leiðbeiningar um afskráningu. Kærandi hafi verið afskráður frá 1. ágúst 2023 á grundvelli þeirra upplýsinga. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda í kæru þess efnis að hann hafi tilkynnt stofnunni um upphaf vinnu séu ekki í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga, en ákvæðið hljóði svo:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði. Að auki hafi verið innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 2.468 kr.

Tekjur kæranda komi til frádráttar atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sem hljóði svo:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1480/2022, sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi frítekjumark verið 81.547 kr. á mánuði vegna ársins 2023. Í júlí 2023 hafi tekjur kæranda numið hærri fjárhæð en frítekjumark atvinnuleysisbóta. Því hefðu umræddar tekjur réttilega átt að koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum í samræmi við 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi hins vegar ekki verið kunnugt um umræddar tekjur og því hafi myndast skuld við stofnunina, samtals að fjárhæð 2.468 kr.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess sem hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Hver ástæða þess að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur sé hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.

Heildarskuld kæranda standi í 2.468 kr. og þar af sé álag að fjárhæð 322 kr. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til skuldmyndunar. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun til framangreinds. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína gagnvart stofnuninni, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur og sé að finna skýr fyrirmæli þess efnis að slíkt skuli gera í gegnum ,,Mínar síður“ atvinnuleitanda. Jafnframt vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess sem fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar sem geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnun að ekki sé tilefni til að fella niður álag á skuld kæranda.

Eins og kæranda hafi verið tilkynnt í ákvörðunarbréfi Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2023, verði ofgreiddum atvinnuleysisbótum skuldjafnað á móti síðari tilkomnum greiðslum í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Það sé niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki upplýst um tekjur vegna tilfallandi vinnu og skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 2.468 kr. samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ofgreiddum atvinnuleysisbótum skuli skuldajafnað sem nemi 25% af síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum kæranda, sbr. 3. mgr. 39. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2024, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið vegna viðurlagaákvörðunar stofnunarinnar frá 19. desember 2023 en með henni var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 2.468 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006, en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur í júlí 2023 frá B samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í nóvember 2023. Kærandi hefur gert athugasemd við afgreiðslu Vinnumálastofnunar og vísað til þess að hann hafi farið á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar og tilkynnt um fjögurra daga vinnu í júlí 2023.

Þann 29. nóvember 2022 var kæranda tilkynnt að Vinnumálastofnun hefði móttekið umsókn hans um atvinnuleysisbætur. Kæranda var greint frá því að upplýsa þyrfti um allar breytingar á persónulegum högum inni á „Mínum síðum“. Einnig þyrfti að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf og tilfallandi vinnu. Þá var kæranda bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi hans og skyldur væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar er að finna kennslumyndband um hvernig tilkynna beri um tilfallandi vinnu eða tekjur á „Mínum síðum“. Þar er meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um vinnu með að minnsta kosti dags fyrirvara. Skrá skuli áætlaða upphæð tekna og tekið er fram að ekki sé gerð krafa um að skila launaseðli. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita, eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér frekari upplýsinga um skyldu sína til að tilkynna Vinnumálastofnun fyrir fram um framangreindar tekjur með viðeigandi hætti. 

Í gögnum málsins er hvergi að sjá að kærandi hafi haft samband við Vinnumálastofnun vegna vinnu sinnar fyrr en 22. ágúst 2023 en þann dag tilkynnti hann stofnuninni að hann hefði hafið störf 1. ágúst 2023. Kærandi var í kjölfarið afskráður af atvinnuleysisskrá. Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk í júlí 2023. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um viðurlög við slíku broti.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur vegna framangreindra tekna. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um framangreindar tekjur fékk hann greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk í júlí 2023 og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Kemur þá til skoðunar ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2024, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið í tvo mánuði vegna framangreindrar viðurlagaákvörðunar í kjölfar nýrrar umsóknar hans um atvinnuleysisbætur, dags. 11. desember 2023.

Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.   

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 11. desember 2023, starfað í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausan að nýju 11. desember 2023. 

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2024, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest. Ákvörðun stofnunarinnar, dags. 19. desember 2023, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur er einnig staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum