Flugverndarnámskeið vegna Reykjavíkurflugvallar
Næsta námskeið í flugvernd vegna aðgangsstjórnunar á Reykjavíkurflugvelli verður haldið í dag, 8.september, kl. 17:00 í húsi Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur við Flugvallarveg.
Allir þeir sem þurfa heimild til að fara inn á flugvallarsvæði Reykjavíkurflugvallar þurfa að sækja námskeið í flugvernd, þar sem meðal annars er farið yfir grundvallar atriði flugverndar, aðgengi og umgengni um flugvöllinn og akstur á flugvallarsvæðinu.
Námskeiðið tekur um eina til eina og hálfa klukkustund. Ekkert gjald er innheimt fyrir þátttöku í námskeiðinu.