Kynning á tillögum stjórnarskrárnefndar
Miðvikudagurinn 2. mars næstkomandi mun stjórnarskrárnefnd kynna tillögur sínar um breytingar á stjórnarskrá í Háskólanum á Akureyri. Kynningin verður frá kl. 12-13 í hátíðarsal Háskólans á Akureyri, Norðurslóð 2.
Dagskrá:
- Páll Þórhallsson formaður nefndarinnar kynnir tillögurnar.
- Katrín Jakobsdóttir, Birgir Ármannsson og Róbert Marshall þingmenn gera grein fyrir sínum sjónarmiðum.
- Spurningar og umræður.
Fundarstjóri: Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir lögfræðingur lektor við HA.