Tillögur stjórnarskrárnefndar um vernd náttúru og umhverfis og náttúruauðlindir - Standast þær væntingar?
Miðvikudaginn 9. mars kl. 12-13.30 í stofu 101 í Lögbergi, efna Lagastofnun Háskóla Íslands og Lögfræðingafélag Íslands til málþings um tillögur stjórnarsrkárnefndar.
Framsöguerindi
- Dr. Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands, fjallar um ákvæði um vernd náttúru og umhverfis.
- Helgi Áss Grétarsson, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands, fjallar um ákvæði um náttúruauðlindir.
Pallborðsumræður
Þátttakendur í pallborði auk framsöguaðila eru:- Daði Már Kristófersson, dósent í hagfræði og forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.
- Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar.
Fundarstjóri er María Thejll, forstöðumaður Lagastofnunar Háskóla Íslands.
Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis.