Athugasemdir við frumvarp um náttúruauðlindir:
- Taka verður fram að „fullt gjald“ komi fyrir afnot af skilgreindum auðlindum þjóðarinnar.
- Til vara er hægt að taka fram „fullt markaðsgjald“ fyrir afnotin.
- Í öllu falli er ekki hægt að setja fram „eðlilegt gjald“. Af augljósum ásæðum er ómögulegt að skilgreina jafn perónubundið og huglægt mat eins og hvað „eðlilegt gjald“ er. Á móti mætti segja að jafn erfitt sé að skilgreina hugtakið „fullt gjald“. Því er besta og í raun eina leiðin að skilgreina „fullt gjald“ sem það sama og markaðsgjald. Með markaðsgjaldi skilgreinir markaðurinn sjálfur hvert hið rétta gjald er í hvert skipti. Þá er það hvorki matskennt né huglægt persónumat hvert markaðsverðið er.
Athugasemdir við frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu:
- Mjög mikilvægt er að sett sé lágmark þeirra sem óska þjóðaratkvæðagreiðslu og lágmarks þeirra sem samþykkja þurfa slíka atkvæðagreiðslu.
- Tel ég að í drögunum megi bæði hækka prósentu-lágmark þeirra sem óska þjóðaratkvæðagreiðslu og lágmark þeirra sem samþykkja slíka atkvæðagreiðslu um 5%.
Virðingarfyllst, Jón Daði Ólafsson Efnisorð