Málstofa um rafræna stjórnsýslu hjá ríkiog sveitarfélögum
Innanríkisráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Samband íslenskra sveitarfélaga standa í næstu viku fyrir málstofu um rafræna stjórnsýslu fyrir stjórnendur hjá ríki og sveitarfélögum. Málstofan fer fram á Grand hóteli við Sigtún í Reykjavík miðvikudaginn 21. maí milli klukkan 13:00-16:30.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra setur málstofuna og síðan munu nokkrir sérfræðingar fjalla um ýmsar hliðar á rafrænni stjórnsýslu. Dagskráin verður sem hér segir:
DAGSKRÁ |
|
---|---|
13:00 – 13:10 | Setning málstofunnar. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. |
13:10 – 13:30 | Vöxtur í krafti netsins, stefna ríkis og sveitarfélaga um upplýsingasamfélagið. Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í innanríkisráðuneyti. |
13:30 – 13:50 | Miðlæg rafræn þjónusta á Íslandi – hvernig er hægt að vinna saman og ná þannig betri árangri? Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár Íslands. |
13:50 – 14:10 |
Reynslusaga frá sveitarfélagi – hvernig geta smærri sveitarfélög náð árangri í rafrænni stjórnsýslu?
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar. |
14:10 – 14:30 |
Opin gögn – hvað eru opin gögn, hver er ávinningurinn af þeim og hvaða verkefni eru framundan á Íslandi?
Tryggvi Björgvinsson, tölvuverkfræðingur, verkefnisstjóri hjá Open Knowledge. |
14:30 – 14:50 | Kaffi |
14:50 – 15:10 |
Reynslusaga úr stjórnsýslunni – upplýsingatækni og hagræðing.
Óskar J. Sandholt, skrifstofustjóri í miðlægu stjórnsýslunni hjá Reykjavíkurborg. |
15:10 -15:40 |
Öryggi gagna í stjórnsýslunni.
Svavar Hermannsson, sérfræðingur í áhættustýringu upplýsingakerfa, DH Samskipti. |
15:40 – 16:00 |
Innkaup á búnaði og þjónustu – tækifæri til sparnaðar.
Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa. |
16:00 – 16:15 |
Hvaða lærdóm má draga af notkun lögreglunnar á samfélagsmiðlum?
Þórir Ingvarsson rannsóknarlögreglumaður, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. |
16:15 – 16:30 |
Samráð á netinu við stefnumörkun og mótun lagafrumvarpa.
Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti. |
16:30 | Dagskrárlok. |
Fundarstjóri: | Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í innanríkisráðuneyti. |
Markmið málstofunnar eru að:
- auðvelda stjórnendum að forgangsraða þeim verkefnum í upplýsingatækni og rafrænni stjórnsýslu sem þeir standa frammi fyrir á næstu árum,
- stuðla að aukinni samvinnu stofnana og sveitarfélaga um upplýsingatækni og rafræna stjórnsýslu,
- auðvelda stjórnendum að greina hvað hægt er að gera strax til að ná betri árangri í rafrænni stjórnsýslu og upplýsingatæknirekstri,
- styðja stjórnendur í að ná meiri árangri í framþróun í rafrænni stjórnsýslu og upplýsingatækni.
Málstofa um upplýsingatækni og rafræna stjórnsýslu er undanfari námskeiða sem haldin verða á þessu og næsta ári í kjölfar könnunar sem gerð var í lok árs 2013 þar sem fram kom mikill áhugi forstöðumanna og forsvarsmanna sveitarfélaga fyrir málstofu sem þessari. Aðgangseyrir er 5000 kr.