Hvar ertu á kjörskrá?
Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningunum, 31. maí 2014, með því að smella hér. Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag.
Þjóðskrá Íslands sér um gerð kjörskrárstofna og sveitarstjórnir gera kjörskrár á grundvelli þeirra.
Á vefnum kosning.is er að finna ýmsar upplýsingar um komandi kosningarnar og eldri kosningar.