Hoppa yfir valmynd
23. apríl 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Áslaug nýr rektor Háskólans á Akureyri

Áslaug Ásgeirsdóttir - mynd

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir hefur verið skipuð rektor Háskólans á Akureyri (HA) frá og með 1. júlí næstkomandi. Skipan Áslaugar er samkvæmt ákvörðun háskólaráðs HA frá 2. apríl síðastliðnum um að tilnefna hana sem næsta rektor skólans. Hún tekur við starfinu af Eyjólfi Guðmundssyni sem gegnt hefur stöðu rektors frá 1. júlí 2014.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, samþykkti tillöguna og tekur Áslaug við rektorsstöðunni 1. júlí næstkomandi. Alls bárust fimm umsóknir um embættið en skipað er til fimm ára.

Aðstoðarrektor undanfarin fimm ár

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir starfar í dag sem prófessor við Bates Collage, Lewiston, Maine í Bandaríkjunum og hefur starfað þar síðan árið 2001. Áslaug hefur gegnt þar ýmsum stjórnunarstörfum, s.s. starfi aðstoðarrektors og starfi deildarforseta. Áslaug er með doktorsgráðu í stjórnmálafræði frá Washington University in St. Louis í Bandaríkjunum.

Auk þess að hafa unnið við kennslu og rannsóknir hefur Áslaug víðtæka stjórnunarreynslu. Hún hefur í gegnum störf sín hjá Bates College m.a. komið að stjórnun rannsóknasjóðs, endurskoðun á nefndakerfi, yfirumsjón með námsmati, endurskipulagningu deildar og fleiri verkefnum bæði sem stjórnandi og prófessor. Áslaug hefur einnig starfað sem gestaprófessor við Háskólasetur Vestfjarða og sem Fulbright fræðimaður hjá Háskóla Íslands.

Áslaug er þakklát trausti háskólaráðs til síns, og hún hlakkar til að hefja störf við Háskólann á Akureyri, og setjast að á Akureyri. „Háskólinn á Akureyri er góður skóli, sem hefur ákveðna sérstöðu í Íslensku háskólasamfélagi, og verður gaman að byggja á þeim grunni til framtíðar,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir.  

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta