190 milljóna aukafjárveiting í viðhald heilbrigðis- og heilsugæslustofnana
190 milljónir króna af 500 milljóna aukafjárveitingu ríkissjóðs til viðhalds og endurbóta opinberra fasteigna í sumar verða nýttar í viðhald heilbrigðis- og heilsugæslustofnana.
Alls verða 90 milljónir króna lagðar í viðhald á eignum Landspítala og 40 milljónir króna verða nýttar til endurbóta á húsnæði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Þá renna 60 milljónir króna til viðhalds og endurbóta á Sjúkrahúsinu á Akureyri og á Kristnesspítala.
Alls fer rúmur milljarður króna í viðhald og endurbætur á heilbrigðisstofnunum á öllu landinu í ár. Aukafjárveitingin nú þýðir verulega viðbót til viðhalds fasteigna á þeim stöðum sem hún rennur til og ljóst að hún kemur í mjög góðar þarfir.
Aukafjárveitingunni er ætlað að stuðla að atvinnusköpun í byggingariðnaði. Verkefnin eru valin með það í huga að hægt verði að vinna þau í sumar.