Hoppa yfir valmynd
15. október 2024 Matvælaráðuneytið

Skráning hafin á Matvælaþing 2024

Skráning er hafin á Matvælaþing sem haldið verður í Silfurbergi í Hörpu 5. nóvember n.k.

Dýravelferð og hugmyndafræði Einnar heilsu (e. One Health) eru meginviðfangsefni þingsins sem er nú haldið í þriðja sinn.

Í störfum sínum hefur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra lagt aukna áherslu á ábyrgt dýrahald og velferð dýra með hliðsjón af hugmyndafræði þar sem heilsa manna, dýra og umhverfis mynda eina órofa heild. Dýravelferð er mikilvægur hluti þeirrar stefnu og samræmist markmiðum laga um velferð dýra. Þingið er öllum opið en til að koma í veg fyrir matarsóun er krafist skráningar, hægt er að skrá þátttöku á þinginu hér.

Fyrirlesarar þingsins eru:

Maarten Hoek frá Lýðheilsu- og umhverfisstofnun Hollands flytur fyrirlestur á þinginu um áskoranir og ávinning sem tengjast Einnar heilsu stefnunni í alþjóðlegu samhengi. Maarten hefur unnið að One Health Strengthening Europe verkefninu, samvinnuverkefni evrópskra stofnana sem miðar að því að styrkja stefnuna í Evrópu.

Dr. Rebeca García Pinillos er stofnandi og framkvæmdastjóri One Welfare CIC samtakanna sem vinna að auknum skilningi á tengslum umhverfisverndar við velferð dýra og manna. Umfjöllunarefni fyrirlesturs Rebecu verður Ein velferð stefnan (e. One Welfare) sem er útvíkkun á Einnar heilsu stefnunni og tengir saman velferð dýra, velferð manna og umhverfisvernd. Ein velferð byggir á hugmyndinni um að velferð dýra hafi bein og óbein áhrif á velferð manna og umhverfisins og öfugt.

Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun mun einnig flytja fyrirlestur um Einnar heilsu stefnuna í íslensku samhengi og Sigurborg Daðadóttir, fyrrum yfirdýralæknir og sérfræðingur hjá matvælaráðuneytinu, mun flytja fyrirlestur undir heitinu Dýrahald og siðferði þar sem fjallað verður um margvíslegar hliðar dýrahalds og þær áskoranir sem því fylgja.

Sigurborg Daðadóttir, fyrrum yfirdýralæknir og sérfræðingur hjá matvælaráðuneytinu, mun flytja fyrirlestur undir heitinu Dýrahald og siðferði þar sem fjallað verður um margvíslegar hliðar dýrahalds og þær áskoranir sem því fylgja.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta