Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2002 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Málþing um réttindi barna

Félagsmálaráðuneytið í samvinnu við Barnaheill boðar til málþings um réttindi og velferð barna á Íslandi á Grand Hótel þriðjudaginn 30. apríl 2002 kl. 13.00–17.00, þar sem sjónum verður einnig beint að börnum í alþjóðlegu samhengi. Skráning á málþingið er kl. 12.30–13.00.

Tilefnið er að Sameinuðu þjóðirnar munu í maí 2002 beina sjónum sínum að aðstæðum barna. Dagana 5.–7. maí verður haldið Barnaþing í New York sem eingöngu er ætlað börnum. Í framhaldi verður haldið Aukaallsherjarþing Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna með þátttöku fjölmargra þjóðarleiðtoga. Félagsmálaráðherra mun sækja Aukaallsherjarþingið ásamt m.a. tveimur íslenskum börnum sem einnig munu sækja Barnaþingið.

Aðstæður íslenskra barna eru að mörgu leyti ólíkar aðstæðum barna annars staðar í veröldinni. Börn búa víða við ákaflega kröpp kjör og mikla fátækt, þjást af hungri og sjúkdómum og í nokkrum heimshlutum búa börn við stöðug stríðsátök og njóta ekki skólagöngu. Veruleiki íslenskra barna er annar og ekki eins harðneskjulegur. Umhverfi þeirra er þrátt fyrir það ekki alltaf eins og best verður á kosið og um það verður fjallað á málþinginu þann 30. apríl nk.

Á málþinginu verður leitast við að draga fram í dagsljósið nokkur atriði sem áhrif hafa á aðstæður íslenskra barna. Þarf æskan sérstaka vernd, einkum með tilliti til frelsis og ásóknar fjölmiðla og markaðarins í börnin og spurt er hvort agi sé andstaða frelsis. Málþingið hefst með umræðu um börn í alþjóðlegu samhengi. Síðan verður fjallað um stöðu fjölskyldunnar og um aðstæður foreldra til að koma börnum sínum til manns í nútímasamfélagi. Fjallað verður sérstaklega um hugtakið frelsi í tengslum við uppeldi barna. Þá verður litið út fyrir heimilin og ytra umhverfið skoðað út frá skólanum, félagahópnum og félagslífi krakka. Að lokum verður í tveimur erindum fjallað um þátttöku ungmenna í kynlífi.

Skráning á málþingið fer fram í félagsmálaráðuneyti í síma 545 8100 og á heimasíðu ráðuneytisins hér.

Aðgangseyrir er 1.000 kr.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta