Samráð hjá ESB um öryggi á vegum og í jarðgöngum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst opið samráð um öryggi á vegum og í jarðgöngum. Samráðið stendur til 10. september 2017 og geta hagsmunaaðilar tekið þátt í samráðinu og svarað spurningalista um verkefnið.
Markmiðið er að meta áhrif tilskipana um öryggisstjórnun á vegum og um lágmarksöryggiskröfur fyrir jarðgöng í samevrópska vegakerfinu með hugsanlega endurskoðun í huga. Hugsunin er að þeir sem hafa hagsmuna að gæta sem og almennir borgarar geti komið að sjónarmiðum sínum við matið. Tilskipanirnar eru annars vegar 2008/96/EC um öryggisstjórnun á vegum og 2004/54/EC um lágmarksöryggiskröfur fyrir jarðgöng.
- Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu samráðsins
- Sjá einnig vef ESB um öryggi vega
- Skýrsla um innleiðingu og áhrif tilskipunar um öryggi í jarðgöngum