Hoppa yfir valmynd
10. apríl 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 171/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 10. apríl 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 171/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18020009

Kæra […]

og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 5. febrúar 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fædd þann […], og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 19. janúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar og barna hennar, […], fd. […], og […], fd. […], um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda þau til Þýskalands. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt eiginmanni sínum.

Kærandi krefst þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hennar og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr., sömu laga.

Til vara er gerð krafa um að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka mál þeirra til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 13. september 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 20. september 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar og barna hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 9. október 2017 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda og barna hennar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 1. desember 2017 að taka ekki umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þau skyldu endursend til Þýskalands. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 22/2018, dags. 9. janúar 2018, var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og stofnuninni gert að taka mál kæranda og barna hennar til meðferðar á ný. Útlendingastofnun ákvað þann 19. janúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þau skyldu endursend til Þýskalands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 5. febrúar 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 14. febrúar 2018 ásamt fylgigögnum. Þá bárust viðbótarathugasemdir við greinagerð kæranda þann 27. febrúar 2018. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvarðana Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og þau skyldu endursend til Þýskalands. Lagt var til grundvallar að Þýskaland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi og börn hennar voru ekki talin í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál þeirra. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hana til Þýskalands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kæranda kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, útlendingalaga og barnaverndarlaga, að börnum kæranda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til Þýskalands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sem var lögð fram hjá kærunefnd fyrir hönd allrar fjölskyldunnar kemur fram að eiginmaður kæranda hafi átt skóbúð […] í heimaríki sínu, […], og að hann hafi starfað fyrir ríkisstjórn landsins […]. Þá kemur fram að kærandi og börn hennar hafi þurft að flýja […] þegar […] hafi tekið við völdum í borginni enda hafi hún átt á hættu að vera ofsótt fyrir að vera af […] uppruna. Þá kemur fram að ungur sonur kæranda hafi orðið fyrir banvænu skoti frá hermanni […] sem ætlað hafi verið eiginmanni hennar. Í kjölfar þess hafi kærandi og börn hennar flúið […] og hafi þau farið til Þýskalands. Kærandi kveður að þau hafi búið við afar slæmar aðstæður í Þýskalandi og eftir að hafa fengið synjun um alþjóðlega vernd þar í landi hafi þau komið til Íslands. Þá kemur fram að kærandi og fjölskylda hennar hafi leitað eftir aðstoð til að komast hingað til lands og að tiltekinn einstaklingur hafi fylgt þeim hingað til lands. […]. Þá greinir kærandi frá því að ókunnugir menn hafi spurst fyrir um hana og fjölskyldu hennar í hælisbúðum í Þýskalandi og jafnframt að þau hafi fengið símtöl frá Þýskalandi þar sem þeim hafi verið hótað og vöruð við því að snúa aftur.

Kærandi gerir athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í máli hennar einkum varðandi lýsingu hennar á þeim aðbúnaði sem hún og börn hennar hafi búið við þar í landi. Gerir kærandi athugasemd við að ekki hafi verið rökstutt nánar sú fullyrðing stofnunarinnar að aðstæður á hóteli því sem fjölskyldan hafi dvalið á hafi verið aðrar en þær sem kærandi hafi lýst og gögn málsins hafi bent til.

Aðalkröfu sína styður kærandi með vísan til þess að hún og börn hennar séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að hún og börn hennar hafi farið til sálfræðings á vegum Göngudeilda sóttvarna og að gögnin beri með sér að bæði hún og börnin séu haldin kvíða og stressi. Þá vísar kærandi til atviks þar sem hermaður hafi orðið syni hennar að bana í heimaríki eftir slysaskot og til símtala sem hún hafi fengið frá Þýskalandi til stuðnings því að hún sé ekki vel á sig komin andlega. Börn kæranda upplifi mikinn ótta og teljist vera viðkvæmur hópur. Telji kærandi að vegna erfiðra atburða sem markað hafi andlega heilsu þeirra teljist þau vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þann 23. febrúar 2017 bárust kærunefnd frekari gögn í málinu sem snéri að sálfræðiviðtali kæranda og elstu dóttur hennar þar sem lýst væri bágri andlegri heilsu þeirra.

Þá vísar kærandi til hagsmuna barna sinna enda teljist þau til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd. Kærandi vísar til ákvæða stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, barnalaga nr. 76/2003 og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem lögfestur var með lögum nr. 19/2013 til stuðnings þeirri fullyrðingu sinni að ávallt skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi. Þá fjallar kærandi um tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/32/ESB um sameiginlegar málsmeðferðarreglur við veitingu og afturköllun á alþjóðlegri vernd og Dyflinnarreglugerðina. Telur kærandi að endursending barna hennar til Þýskalands sé í trássi við meginreglur barnaréttar og ekki þeim fyrir bestu. Mikilvægt sé að hafa í huga fyrirmæli 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga um að tryggja skuli öryggi, velferð og þroska barna hennar.

 Kærandi telur að taka skuli mál hennar til efnismeðferðar hér á landi vegna sérstakra ástæðna í máli hennar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til lögskýringargagna að baki ákvæðinu og bendir á nýlega úrskuði kærunefndar útlendingamála máli sínu til stuðnings. Telur kærandi að breytingar á löggjöfinni og breytt framkvæmd kærunefndar í kjölfarið sýni viðleitni löggjafans til þess að víkka gildissvið ákvæðisins. Kærandi telur að stjórnvöldum beri að framkvæma heildstætt mat á viðkvæmri stöðu hennar og barna hennar, einstaklingsbundnum aðstæðum þeirra, og gögnum um stöðu mála í móttökuríki. Kærandi bendir í því sambandi á aðbúnaðinn í móttökumiðstöðinni í Þýskalandi. Byggingin hafi verið gömul, þakið lekið og músagangur í húsinu. Þá telji kærandi það ótækt að börn hennar hafi þurft að sofa í öðru herbergi en hún og eiginmaður hennar. Kærandi óttist að hún og börn hennar muni verða send aftur í sömu móttökumiðstöð og áður miðað við svar þýskra stjórnvalda um móttöku þeirra auk þess að hún óttist þá sem flutt hafi þau hingað til lands.

Að lokum styður kærandi aðalkröfu sína með vísan til 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr., laga um útlendinga og telur að synjun stjórnvalda á umsókn hennar og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi leiði til þess að þau verði fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð. Vísar kærandi til þess að skv. ákvæðinu þurfi stjórnvöld bæði að líta til þess að ekki megi senda þau til ríkis þar sem þau eigi á hættu slíka meðferð auk þess sem ekki megi senda þau til ríkis þar sem líklegt er að þau verði áframsend til svæðis þar sem þau muni verða fyrir slíkri meðferð. Kærandi telur að þau falli undir báðar þessar meginreglur. Þá lýsir kærandi bágum aðstæðum í heimaríki og vísar til skýrslna aljóðlegra samtaka og fréttaskýringa máli sínu til stuðnings.

Varakröfu sína byggir kærandi á því að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ófullnægjandi í skilningi 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi vísar í fyrsta lagi til framangreindra athugasemda hennar við rannsókn Útlendingastofnunar í málinu og í öðru lagi geri hún athugasemd við að stofnunin dragi í efa frásögn sína af aðstæðum hennar og barna í Þýskalandi, án þess að rökstyðja nánar á hverju stofnunin byggi þær fullyrðingar. Telur kærandi að rannsókn Útlendingastofnunar á aðstæðum sínum hafi verið verulega ábótavant og uppfylli ekki þær kröfur sem 10. gr. stjórnsýslulaga mæli fyrir um.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda og börnum hennar á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að kærandi og börn hennar hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Réttarstaða barna kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að ákvarða réttarstöðu barnsins í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Í 8. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman. Ljóst er að þau börn sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir þeirra því í hendur.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi kom hingað til lands ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Kærandi greindi m.a. frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún svæfi lítið, væri óróleg og finnist erfitt að koma hlutum í verk. Í gögnum frá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins er varða heilsu kæranda og fjölskyldu hennar, sem lögð voru fram við meðferð málsins, má m.a. sjá að kærandi fór í viðtal til sálfræðings en þar komi fram staðfesting á því að hún sofi lítið og fái reglulega martraðir. Þá sé sjón dóttur kæranda slæm og hún þurfi að notast við gleraugu. Í gögnum, sem bárust kærunefnd 23. febrúar sl., um sálfræðiviðtal kæranda og eldri dóttur hennar kemur fram að dóttur kæranda líði mjög illa og hún einangri sig. Þá virðist öll fjölskyldan bera þess merki að vera með áfallaröskun.

Að mati kærunefndar, einkum með vísan til gagna um líðan eldra barns kæranda, er fjölskyldan í heild sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls þeirra hér á landi.

Aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the world 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • Germany 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 31. mars 2018);
  • From host country to deportation country – latest asylum reform in Germany (European Council on Refugees and Exciles (ECRE), 26. maí 2017,
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015) og
  • ECRI Report on Germany (European Commission against Racism and Intolerance, 25. febrúar 2014).

Í málinu liggur fyrir að kærandi og börn hennar hafi fengið synjun á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd í Þýskalandi. Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge) geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá Útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. lyfjum. Í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Þýskalandi telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi og börn hennar geti leitað sér heilbrigðisþjónustu við hæfi þar í landi.

Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi má ráða að flestar móttökumiðstöðvar hafi þá stefnu að aðgreina einstæðar konur og fjölskyldur frá öðrum umsækjendum um alþjóðlega vernd. Þá gefa framangreind gögn ekki til kynna að við vistun umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi séu fjölskyldur aðskildar. Frjáls félagasamtök stóðu fyrir herferð árið 2016 til að vekja athygli á að börn í móttökumiðstöðvum fengju aðeins grundvallarmenntun en hefðu ekki aðgang að hefðbundna skólakerfinu á meðan þau dveldu í miðstöðvunum. Sérstaklega ætti þetta við börn frá ríkjum sem teldust örugg upprunaríki. Í maí sl. hafi þýsk yfirvöld samþykkt umbætur í útlendingalöggjöf landsins. Samkvæmt breytingunum geti þýsk stjórnvöld vistað umsækjendur um alþjóðlega vernd í svokölluðum upphafsmiðstöðvum (e. initial reception centers) á meðan málsmeðferð þeirra standi yfir og þar til brottflutningur úr landinu eigi sér stað eða í allt að tvö ár. Hafi umrædd framkvæmd þýskra stjórnvalda verið gagnrýnd m.a. af UNICEF fyrir að gæta ekki nægilega að hagsmunum barna, en aðstæðurnar í upphafsmiðstöðvunum séu ekki taldar hæfa börnum auk þess sem öryggi barna sé ekki nægilega tryggt. Jafnframt hafi börnum í umræddum upphafsmiðstöðvum ekki verið veittur aðgangur að þýska skólakerfinu.

Kærandi kveðst m.a. óttast að þýsk yfirvöld endursendi hana og börn hennar til heimaríkis þeirra. Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Þýskalandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Þá er Þýskaland bundið að þjóðarétti til að fylgja reglunni um að einstaklingum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement). Telji kærandi framangreind réttindi sín vera brotin getur hann leitað réttar síns fyrir þýskum dómstólum og Mannréttindadómstól Evrópu.

Samkvæmt framansögðu hafa ákveðnir þættir í móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi verið gagnrýndir. Aftur á móti hefur athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda og barna hennar þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda og börnum hennar séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda og barna hennar, þ.á m. heilsufari þeirra og aðstæðum í Þýskalandi. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í móttökumiðstöðvum í Þýskalandi er það mat nefndarinnar að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar í málinu að húsnæðisaðstæður sem bíða kæranda í Þýskalandi séu fullnægjandi. Þá séu aðstæður í móttökumiðstöðvum í Þýskalandi í samræmi við móttökutilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2013/33. Jafnframt bendi gögn málsins til þess að aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi að heilbrigðisþjónustu sé fullnægjandi og að kærandi og börn hennar eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu við hæfi. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi og börn hennar muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Ekki sé fyrir hendi ástæða í málum kæranda og barna hennar er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Kærandi hefur sagt að hópur manna, sem standi að smygli á fólki milli landamæra, hafi hringt í sig frá Þýskalandi og hótað sér og börnum sínum. Þeir hafi sagt henni að vara sig, yrði hún send aftur til Þýskalands. Það er mat kærunefndar, m.t.t. þeirra upplýsinga sem fyrir liggja um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, að þarlend yfirvöld séu í stakk búin til þess að veita umsækjendum fullnægjandi vernd gegn slíkum hótunum og að kærandi geti leitað til lögreglunnar og annarra yfirvalda vegna þeirra. Að mati kærunefndar benda gögn málsins ekki til þess að aðstæður kæranda og fjölskyldu hennar séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að rétt sé að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar.

Mál barna kæranda hefur verið skoðað í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Með vísan til þess sem áður hefur verið rakið um aðstæður barnafjölskyldna í leit að alþjóðlegri vernd í Þýskalandi telur kærunefnd ljóst að flutningur kæranda og fjölskyldu hennar til Þýskalands hafi ekki í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist, sbr. 8. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga og að hagsmunum barna kæranda sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem eina heild og rétt hennar til að vera saman. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi er það mat kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna barna kæranda og flutningur þeirra til Þýskalands samrýmist öryggi þeirra, velferð og félagslegum þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem kærandi lagði fram með kæru sinni, svo og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Þýskalandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hennar og barna hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun m.a. þann 8. nóvember 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 13. september 2017. Kærunefnd telur jafnframt ljóst að ákvæði I til bráðabirgða við lög um útlendinga, sbr. lög nr. 81/2017 um breytingu á lögum um útlendinga, eigi ekki við í máli barna kæranda, þar sem ekki eru liðnir níu mánuðir frá því að fjölskyldan sótti um alþjóðlega vernd hér á landi.

Reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað þær aðstæður sem bíði kæranda og barna hennar í Þýskalandi.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi og um einstaklingsbundnar aðstæður kæranda. Þá er tekin afstaða til þess í ákvörðun Útlendingastofnunar að það sé mat stofnunar að einstaklingsbundnar aðstæður vegi ekki svo þungt að sérstakar ástæður eigi við í málinu skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og að vegna þeirra aðstæðna muni hann ekki eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki.

Að mati kærunefndar verður ekki talið að skort hafi á rannsókn Útlendingastofnunar er þetta atriði varðar. Svo sem fram hefur komið hefur kærunefnd yfirfarið þau gögn sem aflað var við meðferð málsins, svo og skýrslur og önnur gögn um aðstæður í Þýskalandi, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda er þetta varðar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga.

Hins vegar gerir kærunefnd athugasemd við rökstuðning ákvarðana í málum barna kæranda. Í niðurstöðum ákvarðana barnanna er vísað til niðurstöðu í ákvörðunum foreldra þeirra og m.a. kemur fram að í ákvörðunum foreldranna hafi einnig verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður haft horft við einstökum þáttum ákvarðananna. Hvergi er í forsendum fyrir niðurstöðu í málum foreldranna né í ákvörðunum barnanna að finna umfjöllun um aðstæður barna í hæliskerfinu í Þýskalandi eða um stöðu barna kæranda við endursendingu til Þýskalands. Þá er ekki að finna umfjöllun um einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í ákvörðunum foreldranna. Þegar litið er heildstætt á ákvarðanir í málum fjölskyldunnar er það afstaða kærunefndar að skort hafi á að rökstuðningur í málunum hafi uppfyllt kröfur 1. og 2. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga að því er varðar lýsingu á atvikum máls sem tengjast börnum kæranda og sjónarmiðum við mat á umsóknum þeirra.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hennar og barna hennar um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi og senda þau til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decision‘s of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                               Pétur Dam Leifsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta