Mál nr. 43/2017 Úrskurður 22. september 2017
Mál nr. 43/2017 Eiginnafn: Jonný
Hinn 22. september 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 43/2017 en erindið barst nefndinni 28. ágúst.
Eiginnafnið Jonný (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jonnýjar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Jonný (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.