Ríkissjóður gefur út skuldabréf í evrum
Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 3,4 milljörðum evra eða nærri sjöfaldri fjárhæð útgáfunnar. Fjárfestahópurinn samanstendur af seðlabönkum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum Citi, JP Morgan og Morgan Stanley.
„Þessi lántaka er staðfesting á greiðum aðgangi ríkissjóðs að fjármagni á alþjóðamörkuðum og sýnir tiltrú fjárfesta á þann viðnámsþrótt sem byggður hefur verið upp á síðustu árum. Hún eykur getu okkar til að mæta afleiðingum heimsfaraldurs kórónuveiru og endurspeglar mikinn styrk og getu til að sigrast á efnahagslegum afleiðingum hans.“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Í útboðsferlinu bötnuðu kjör ríkissjóðs um 30 punkta vegna mikillar eftirspurnar. Vel yfir 200 aðilar sýndu útgáfunni áhuga, eða um helmingi fleiri aðilar en í síðustu útgáfu ríkissjóðs, og heildareftirspurn nam um sjöfaldri útboðsfjárhæðinni.
„Útgáfan er í samræmi við stefnu ríkissjóðs í lánamálum, auðveldar aðgengi annarra innlendra aðila að erlendum lánsfjármörkuðum og staðfestir greiðan aðgang ríkissjóðs að stórum og fjölbreyttum hópi fjárfesta. Markaðir hafa verið líflegir að undanförnu enda eru mörg ríki í sömu sporum, að tryggja sér fjármagn til lengri tíma," segir Bjarni Benediktsson.