Endurskoðun á samningsformum vegna NPA
Verkefnisstjórnin hefur tekið ákvörðun um að endurskoða öll gildandi samningsform vegna NPA. Gert er ráð fyrir því að þeirri vinnu verði lokið í apríl næstkomandi. Endurskoðun samningsformanna byggir á þeim athugasemdum sem fram hafa komið bæði frá notendum og sveitarfélögum. Gert er ráð fyrir því að samningsformin verði tilbúin til notkunar þegar NPA hefur verið lögfest.