Heildarendurskoðun laga um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir o.fl.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað nefnd í því skyni að endurskoða í heild lög nr. 25/1975 um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki störfum með skýrslu til ráðherra fyrir 1. nóvember 2016.
Formaður nefndarinnar er Sóley S. Bender prófessor. Aðrir nefndarmenn eru Guðrún Ögmundsdóttir félagsráðgjafi og Jens A. Guðmundsson læknir.
Starfsmaður nefndarinnar er Þórunn Oddný Steinsdóttir, lögfræðingur í velferðarráðuneytinu.