Jón Viðar Gunnarsson - Ákvæðin þrjú
Góðan dag.
Ég sem Íslendingur mótmæli harðlega þeim ljóta leik sem Alþingi Íslendinga hefur leikið þjóðina með breytingar á stjórnarskránni.
Þann 20. október 2012 samþykkti Íslenska þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslu nýja stjórnarskrá Stjórnlagaráðs sem Alþingi hefur með ofbeldi kosið að virða að vettugi.
Ég mótmæli þessu harðlega.
Varðandi yfirklór svokallaðrar stjórnarskrárnefndar þá hefur sú vinna ekkert umboð frá þjóðinni og hafna ég því þeim málatilbúnaði öllum fyrir mína parta.
Virðingarfyllst,
Jón Viðar Gunnarsson