Hoppa yfir valmynd
17. maí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 285/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 17. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 285/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23040028

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 405/2022, dags. 6. október 2022, staðfesti kærunefnd ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. ágúst 2022, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 7. október 2022.

Hinn 13. október 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar og synjaði kærunefnd beiðni kæranda 24. október 2022 með úrskurði nr. 435/2022. Hinn 5. apríl 2023 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins ásamt greinargerð og fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd upplýsingar frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra 18. apríl 2023.

Endurupptökubeiðni kæranda er byggð á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð sinni krefst kærandi þess að kærunefnd endurupptaki úrskurð sinn í samræmi við 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga og feli Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga eigi aðili rétt á því að fá mál sitt tekið til meðferðar á ný ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hafi byggst á atvikum sem breyst hafi verulega frá því að ákvörðun var tekin. Í því máli sem hér sé til meðferðar hafi kærunefnd tekið ákvörðun sína 6. október 2022 og hún verið tilkynnt kæranda degi síðar.

Samkvæmt 1. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli flutningur umsækjanda, eins og um getur m.a. í d-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar, frá aðildarríki, sem leggur fram beiðni til aðildarríkisins, sem ber ábyrgð, fara fram í síðasta lagi innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru eða endurskoðun, ef um er að ræða áhrif til frestunar, af stjórnvöldum í aðildarríki, sem leggur fram beiðnina. Hinn 7. apríl 2023 hafi sex mánuðir verið liðnir frá því að úrskurður kærunefndar var tilkynntur kæranda. Á þeim tímapunkti hafi belgísk stjórnvöld því ekki lengur borið ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd, sbr. 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, sbr. einnig úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. 297/2022 frá 15. ágúst 2022.

Íslensk stjórnvöld hafi að mati kæranda ekki haft nokkra ástæðu til að framlengja frestinn á grundvelli 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar enda hafi kærandi notið framfærslu hér á landi þann tíma sem hann hafi dvalið hér þó hann hafi ekki alltaf nýtt sér búsetuúrræði íslenskra stjórnvalda. Hafi íslensk stjórnvöld leitað hans hafi það farið fram hjá kæranda og talsmanni hans og því sé ljóst að leit þeirra hafi verið ómarkviss en kærandi hafi tilkynnt Útlendingastofnun það sérstaklega þegar hann hafi flutt.

Þar sem belgísk stjórnvöld beri ekki lengur ábyrgð á umsókn kæranda beri íslenskum stjórnvöldum í samræmi við meginreglu 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga að taka umsókn hans til efnismeðferðar.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland Dyflinnarreglugerðina, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Hinn 14. júní 2022 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Belgíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá belgískum yfirvöldum, dags. 23. júní 2022, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Við rekstur máls sem fer samkvæmt fyrirkomulagi Dyflinnarreglugerðarinnar þurfa stjórnvöld að gæta að tilteknum tímafrestum, sbr. m.a. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um fyrirkomulag og fresti. Í því ákvæði felst m.a. að flutningur á umsækjanda skal fara fram innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru eða endurskoðun. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að framlengja frest til flutnings í að hámarki 18 mánuði ef hlutaðeigandi einstaklingur hleypst á brott (e. abscond). Ef umræddir frestir líða leiðir það til þess að ábyrgð á viðkomandi umsókn um alþjóðlega vernd færist sjálfkrafa yfir til þess aðildarríkis sem leggur fram beiðni, sbr. til hliðsjónar dómur Evrópudómstólsins í máli Shiri, C-201/16, frá 25. október 2017 (26.-34. mgr. dómsins). Ef frestir samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar líða er íslenskum stjórnvöldum því ekki lengur heimilt að krefja viðkomandi ríki um viðtöku einstaklings í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í úrskurði kærunefndar nr. 237/2019 frá 9. maí 2019 ákvað kærunefnd að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Eins og að framan greinir samþykktu belgísk stjórnvöld endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda 23. júní 2022. Þá var endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi birt fyrir kæranda 7. október 2022. Rann því upphaflegur sex mánaða frestur til þess að flytja kæranda úr landi út 7. apríl 2023.

Hinn 17. apríl 2023 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um flutning kæranda til viðtökuríkis, s.s. hvort frestur til flutnings hafi verið framlengdur úr sex mánuðum í 18 mánuði, sbr. 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari Útlendingastofnunar, dags. 18. apríl 2023, við fyrirspurn kærunefndar kemur fram að frestur til flutnings hafi ekki verið framlengdur.

Samkvæmt framangreindu er frestur til að flytja kæranda til viðtökuríkis liðinn samkvæmt 1. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Af því leiðir að ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd fluttist yfir á íslensk stjórnvöld þegar umræddur frestur leið og því er ekki lengur hægt að krefja viðtökuríkið um að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þar sem íslensk stjórnvöld bera nú ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd fellst kærunefnd á með kæranda að atvik í máli hans hafi breyst verulega frá því að úrskurður nefndarinnar var kveðinn upp og því sé rétt að mál kæranda verði endurupptekið, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Með vísan til framangreinds verður ákvörðun Útlendingastofnunar frá 10. ágúst 2022 felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant’s request to re-examine the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

Þorsteinn Gunnarsson

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta