Leiðrétting á forsíðufrétt Morgunblaðsins
Í fréttum undanfarna daga hefur verið fullyrt að í tengslum við frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um innflutning á m.a. ófrystu kjöti sé fyrirhugað að heimila dreifingu á ógerilsneyddum mjólkurafurðum. Kemur þetta m.a. fram í yfirlýsingu stjórnar Bændasamtaka Íslands frá því í fyrradag og í fréttaskýringu á forsíðu Morgunblaðsins í dag þar sem fullyrt er um skaðlegar afleiðingar meintra breytinga.
Vegna þessa vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ítreka að ekki er fyrirhugað í tengslum við boðaðar breytingar að gera neinar breytingar á núgildandi regluverki um dreifingu á ógerilsneyddum mjólkurvörum. Mjólk sem dreift er til neytenda skal vera gerilsneydd og mjólkurvörur unnar úr gerilsneyddri mjólk, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 104/2010 með síðari breytingum. Framangreint leiðréttist hér með.
Fréttin var uppfærð 28. febrúar