Mál nr. 661/2021 - Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 661/2021
Fimmtudaginn 3. mars 2022
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 8. desember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. júlí 2021, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 23. desember 2019 og var umsókn hans samþykkt þann 4. febrúar 2020 með 86% bótarétti. Þann 3. maí 2021 var kæranda tilkynnt að ferilskrá hans hefði verið send til B. Þann 6. júní 2021 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá fyrirtækinu. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 1. júlí 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á umræddu starfi. Skýringar bárust frá kæranda 1. og 7. júlí 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. júlí 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi óskaði eftir endurupptöku þann 23. júlí 2021 og með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 17. ágúst 2021, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi fyrir báðum ákvörðunum þann 25. ágúst 2021 sem barst með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. september 2021.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. desember 2021. Með bréfi, dags. 22. desember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 25. janúar 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. janúar 2022. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hann mótmæli rökstuðningi Vinnumálastofnunar, dags. 8. september 2021, og vísi til samskipta B máli sínu til stuðnings þar sem fram komi að hann hafi aldrei hafnað því starfi sem honum hafi verið boðið.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 23. desember 2019. Með erindi, dags. 4. febrúar 2020, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 86%. Þann 3. maí 2021 hafi kæranda verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma hans þar sem honum hafi verið tilkynnt að ferilskrá hans hefði verið send til B. Þann 6. júní 2021 hafi B upplýst að kærandi hefði ekki þegið starfið. Kærandi hafi gefið atvinnurekanda þær skýringar að vegna barna sinna gæti hann ekki hafið störf fyrr en um miðjan ágúst 2021. Með erindi, dags. 1. júlí 2021, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á ástæðum höfnunar á atvinnutilboði. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á hugsanlegum viðurlögum. Skýringar kæranda hafi borist þann 1. júlí 2021 þar sem kærandi segi að hann hafi ekki hafnað starfi og að hann hefði talið að hann kæmi enn til greina í starfið. Viðbótarskýringar hafi borist þann 7. júlí 2021 og hafi kærandi sagst hafa upplýst atvinnurekanda um að hann hefði áhuga á starfinu og hann gæti hafið störf 21. júní 2021, en vegna sumarleyfa barna sinna og skipulagðra ferðalaga gæti hann einungis unnið tilgreindar vikur í júní og júlí. Þá hafi kærandi sagst hafa upplýst atvinnurekanda um að hann myndi síðar gefa upplýsingar um þær vikur sem hann gæti unnið í ágúst en hann væri tilbúinn að hefja fullt starf í lok sumars. Þann 14. júlí 2021 hafi Vinnumálastofnun fjallað um höfnun kæranda á atvinnutilboði hjá B. Fyrir hafi legið skýringar kæranda. Kærandi hafi verið upplýstur um að það væri mat stofnunarinnar að skýringar hans teldust ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og hafi bótaréttur hans verið felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir.
Þann 23. júlí 2021 hafi stofnuninni borist frekari skýringar frá kæranda ásamt beiðni um endurupptöku. Kærandi hafi sagst vera einstætt foreldri með fjögur börn á aldrinum sjö til fjórtán ára en vegna sumarleyfa barna sinna gæti hann ekki gert ráðstafanir með svo stuttum fyrirvara. Þann 17. ágúst 2021 hafi kærandi verið upplýstur um að mál hans hefði verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun frá 14. júlí 2021, enda hefði hún að geyma efnislega rétta niðurstöðu í málinu. Beiðni um rökstuðning fyrir ákvörðun stofnunarinnar hafi borist þann 25. ágúst 2021 og hafi umbeðinn rökstuðningur verið veittur þann 8. september 2021. Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda vegna höfnunar á starfi. Fyrir hafi legið afstaða kæranda en skýringar hafi ekki verið metnar gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.
Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.
Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.
Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi. Ákvæðið sé svohljóðandi:
,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“
Þá segi í 4. mgr. sömu greinar orðrétt:
,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“
Í greinargerð sem fylgt hafi frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi meðal annars fram í athugasemdum við 57. gr. laganna að það að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma teljist ekki réttlæta höfnun á starfi samkvæmt ákvæðinu.
Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu.
Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun á starfi til Vinnumálastofnunar og í kæru til úrskurðarnefndar. Samkvæmt upplýsingum frá B hafi kæranda verið boðið starf og hafi atvinnurekandi óskað eftir því að kærandi hæfi störf strax. Kærandi hafi sagst ekki hafa hafnað starfi heldur gæti hann sem einstætt foreldri með fjögur börn, sem séu sjö, tíu, tólf og fjórtán ára gömul, ekki hafið fullt starf fyrr en í sumarlok vegna sumarleyfa þeirra. Þá hefði hann tilgreint tvær vikur sem hann gæti verið við störf í júní og júlí.
Rík skylda hvíli á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá sé atvinnuleitendum skylt að taka þeim störfum sem kunni að bjóðast, án sérstaks fyrirvara. Samkvæmt skýringum kæranda hafi hann ekki hafnað starfi heldur gæti hann vegna aðstæðna sinna ekki hafið fullt starf fyrr en við sumarlok. Fyrir liggi að kærandi hafi verið tilbúinn til að ráða sig í starfið en með þeim fyrirvara að hann gæti ekki hafið fullt starf fyrr en í lok sumars, eða liðlega þremur mánuðum eftir atvinnuviðtal. Að mati Vinnumálastofnunar megi leggja afstöðu kæranda og framferði hans í atvinnuviðtali að jöfnu við að kærandi hefði hafnað starfi. Í ljósi framangreinds séu skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði en atvinnuleitendur geti almennt ekki hafnað störfum á þeim forsendum að boðið skarist á við sumarleyfistíma barna þeirra. Þá samræmist slíkar skýringar ekki skilyrðum 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um virka atvinnuleit atvinnuleitanda. Út frá fyrirliggjandi gögnum sé ekki fallist á að kærandi hafi verið reiðubúinn að taka því starfi sem hafi boðist, án sérstaks fyrirvara.
Það sé því niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:
„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“
Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:
„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“
Samkvæmt gögnum málsins var kæranda boðið starf hjá B. Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi ekki getað komið til starfa fyrr en um miðjan ágúst vegna barna sinna og ferðalaga. Að mati úrskurðarnefndarinnar voru viðbrögð kæranda við atvinnutilboði frá B þess eðlis að leggja megi að jöfnu við að hafna atvinnutilboði í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.
Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr., en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi, án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 1. mgr. ákvæðisins. Í athugasemdum við þetta ákvæði frumvarpsins segir svo:
„Enn fremur þykir ástæða til að taka fram að umsækjandi teljist vera í virkri atvinnuleit þegar hann, frá því að umsókn um atvinnuleysisbætur barst, hefur bæði vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara. Að öðrum kosti verður ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. Felur þetta til dæmis í sér að gert er ráð fyrir að foreldrar í virkri atvinnuleit með ung börn hafi barnapössun en reynslan í núverandi kerfi er að ungt fólk ber oft fyrir sig að það geti hvorki mætt í atvinnuviðtöl né tekið þátt í vinnumarkaðsúrræðum þar sem það hefur ekki gæslu fyrir börn sín.“
Að mati úrskurðarnefndarinnar eru þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Kæranda bar að gera ráðstafanir varðandi dagvistun fyrir börn sín og þiggja framkomið atvinnutilboð.
Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. júlí 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir