Hoppa yfir valmynd
20. september 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 389/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 389/2023

Miðvikudaginn 20. september 2023

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 10. ágúst 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 23. maí 2023 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2022.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2022. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna fyrir árið 2022 leiddi í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð 508.890 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. maí 2023.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 10. ágúst 2023. Með bréfi, dags. 17. ágúst 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð stofnunarinnar barst með bréfi, dags. 30. ágúst 2023, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 1. september 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi telji sig ekki hafa fengið ofborgað frá Tryggingastofnun ríkisins, þar af leiðandi sé þessi krafa með öllu óraunhæf.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kæra varði endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2022.

Breytingar á lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar hafi tekið gildi þann 12. apríl 2023 en þar sem að um sé að ræða greiðslur til kæranda á árinu 2022, fyrir umræddar breytingar, þá verði málið skoðað út frá eldri lögum að hluta.

Í 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað teljist ekki til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tl. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum, sbr. 30. gr. núgildandi laga um almannatryggingar.

Í 5. mgr. 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar hafi sagt að til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar skyldi leggja áætlaðar tekjur greiðsluþegans á bótagreiðsluárinu. Þá hafi sagt að áætlun um tekjuupplýsingar skyldi byggð meðal annars á nýjustu upplýsingum frá greiðsluþega, sbr. 39. gr. laganna þar sem hafi sagt að greiðsluþega væri skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem gætu haft áhrif á bætur eða greiðslur.

Í 3. mgr. 33. gr. núgildandi laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, þá skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009.

Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 34. gr. núgildandi laga um almannatryggingar. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Málavextir séu þeir að á árinu 2022 hafi kærandi verið með ellilífeyrisgreiðslur allt árið. Kæranda hafi verið tilkynnt um endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2022 með bréfi, dags. 23. maí 2023. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 508.890 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu tekjuupplýsinga af skattframtali 2023 vegna tekjuársins 2022, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun þann 28. janúar 2022. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að árið 2022 væri kærandi með lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð 2.055.692 kr. og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna væru 1.234.592 kr. í vexti og verðbætur. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda vegna þessarar tekjuáætlunar og hafi honum verið greitt eftir henni allt árið 2022.

Við bótauppgjör ársins 2022 hafi komið í ljós að kærandi hefði verið með lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð 2.114.934 kr. og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna hefði verið 3.781.925 kr. í vexti og verðbætur. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2022 hafi verið sú að kærandi hafi verið ofgreiddur í bótaflokkunum ellilífeyrir og orlofs- og desemberuppbætur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum.

Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eða hvernig þær séu skráðar á skattframtalið, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2022 hafi verið sú að kærandi hafi fengið 2.831.140 kr. greitt á árinu en hefði átt að fá greitt 2.088.778 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 508.890 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Með vísan til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2022. Stofnunin telji að miðað við fyrirliggjandi gögn þá sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og góða stjórnsýsluhætti.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2022.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun á árinu 2022. Samkvæmt þágildandi 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til þess að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í þágildandi 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Samkvæmt þágildandi 1. mgr. 23. gr. laga um almannatryggingar skal ellilífeyrir lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. þágildandi 16. gr., uns lífeyririnn fellur niður. Þá segir að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna. Lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur eru tekjustofnar sem hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. þágildandi 2. mgr. 16. gr.  laga um almannatryggingar og 1. tölul. A- og C- liðar 7. gr. laga um tekjuskatt.

Á grundvelli 3. mgr. 33. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum og reglugerðarákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins sendi Tryggingastofnun kæranda tekjuáætlun með bréfi, dags. 28. janúar 2022, þar sem gert var ráð fyrir að á árinu 2022 fengi kærandi 2.055.692 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 1.234.592 kr. í fjármagnstekjur, sameiginlegar með maka. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá tekjuáætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út miðað við þær tekjuforsendur út árið 2022.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2022 reyndust tekjur kæranda á árinu vera 2.114.934 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 3.781.925 kr. í fjármagnstekjur, sameiginlegar með maka. Niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins var sú að kærandi hafi fengið ofgreiddan grunnlífeyri og orlofs- og desemberuppbætur og að ofgreiðsla ársins hafi verið samtals að fjárhæð 508.890 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hefur verið krafinn um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Samkvæmt framangreindu reyndust fjármagnstekjur og lífeyrissjóðstekjur kæranda vera hærri á árinu 2022 en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun og leiddu til kærðrar ofgreiðslu. Eins og áður hefur komið fram eru lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur tekjustofnar sem hafa áhrif á bótarétt samkvæmt lögum um almannatryggingar, sbr. þágildandi 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar og C-lið 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum kæranda á árinu 2022.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta