Hoppa yfir valmynd
25. júní 2020 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Þrjátíu þúsund hafa sótt Ferðagjöfina: Komdu með!

Nú hafa yfir þrjátíu þúsund einstaklingar sótt Ferðagjöfina sína. Allir einstaklingar 18 ára og eldri með lögheimili á Íslandi fá Ferðagjöf að andvirði 5.000 kr. Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar kórónuveirufaraldurs og efla þannig íslenska ferðaþjónustu sem og hvetja landsmenn til að eiga góðar stundir á ferðalagi víðsvegar um landið. Hægt er að kynna sér Ferðagjöf á vefsíðunni www.ferdalag.is og sjá hvaða fyrirtæki taka þátt. 

„Það er gott að þetta verkefni fari svona vel af stað og gaman að sjá hversu margir taka Ferðagjöfinni fagnandi. Markmiðin eru að hvetja Íslendinga til að ferðast um landið, styðja við ferðaþjónustuna og umfram allt njóta sumarsins á Íslandi. Við erum í þessu saman,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Stafræn lausn

Þar sem Ferðagjöfin er pappírslaus lausn er hún sótt í gegnum smáforrit. Notendur sem ekki vilja hlaða því niður geta nýtt sér Ísland.is til að sækja sína Ferðagjöf.

Við framkvæmd á Ferðagjöfinni er sérstaklega gætt að meðferð umbeðinna persónuupplýsinga, sem eru símanúmer og netfang viðkomandi. Þær verða aðeins notaðar af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu í þeim tilgangi að sannreyna nýtingu Ferðagjafar. Ráðuneytið er ábyrgðaraðili Ferðagjafarinnar.

Komdu með!

Í vor fór af stað Komdu með! - hvatningarátak íslenskra stjórnvalda til að fá Íslendinga til að ferðast um landið og kaupa vörur og þjónustu. Ferðagjöf stjórnvalda er liður í því. Alls hafa rúmlega sex hundruð ferðaþjónustufyrirtæki skráð sig til leiks í Ferðagjöf, en það er þeim að kostnaðarlausu og eru þau hvött til að taka þátt. Ferðaþjónustufyrirtæki geta leitað til Ísland.is til að fá upplýsingar um hvernig þau geta skráð sig til þátttöku. 

Ferðagjöfin nýtist ferðaþjónustunni beint og er hvati til Íslendinga til að ferðast innanlands í sumar og upplifa allt það sem Ísland hefur upp á að bjóða. 

 

Komdu með á www.ferdalag.is þar sem nálgast má upplýsingar um Ferðagjöfina og þá fjölbreyttu ferðaþjónustu sem í boði er um allt land.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta