Tilkynning frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
Í samræmi við markmið í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um að hún muni beita sér fyrir endurskoðun regluverks atvinnulífsins með einföldun og aukna skilvirkni þess að leiðarljósi, vill ráðuneytið kanna hjá hagsmunaaðilum og stofnunum möguleika á einföldun og aukinni skilvirkni á verklagi og regluverki.
Með bréfi þessu er samtökum eða stofnunum hér með gefinn kostur á að koma á framfæri við ráðuneytið athugasemdum, skriflegum eða munnlegum – stórum og smáum – hvort heldur er varðar lagasetningu eða reglugerðarbreytingar, verkferla og verklag, um það er til einföldunar og bóta gæti talist að yðar mati.
Starfsmenn ráðuneytisins á skrifstofu viðskipta- og ferðaþjónustu eru reiðubúnir að aðstoða á allan þann hátt sem mögulegt er og eru jafnframt reiðubúnir að hitta viðkomandi á stuttum fundi eða fundum til að fara yfir málin.
Ef óskað er funda með starfsmönnum ráðuneytisins, vinsamlega sendið tölvupóst með beiðni þar um á:
[email protected]
Gert er ráð fyrir að tillögur berist ráðuneytinu fyrir 1. desember n.k.