Hoppa yfir valmynd
27. júní 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samningur við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi um UNESCO-skóla

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi - mynd

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, undirrituðu í morgun samning um UNESCO-skólaverkefnið.

Verkefnið hófst sem tilraunaverkefni fyrir rúmum sjö árum síðan. UNESCO-skólum hefur fjölgað síðustu tvö árin og eru þeir eru nú tólf talsins: einn leikskóli, fjórir grunnskólar og sjö framhaldsskólar. Þá eru fleiri skólar í umsóknarferlinu. Verkefnastjóri UNESCO-skóla á Íslandi er Kristrún María Heiðberg.

Samningur þessi er tímamótasamningur og sá fyrsti sinnar tegundar. Hann er liður í að efla fjölbreytt starf á vettvangi UNESCO og hluti af áherslum Íslands sem aðili að framkvæmdastjórn UNESCO árin 2021-2025.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra:

„Það er mikilvægt að undirbúa börn fyrir framtíðina með hliðsjón af gildum heimsmarkmiðanna. UNESCO-skólaverkefnið er liður í því starfi og hlakkar ráðuneytið til frekara samstarfs á komandi árum“.

Næstu fjögur árin mun félagið halda áfram að efla verkefnið enn frekar og fjölga skólunum í samstarfi við ráðuneytið og íslensku UNESCO-nefndina.

Meginmarkmið samningsins eru:

  • að styðja við innleiðingu á helstu þemum UNESCO-skóla: alþjóðasamvinnu, starfsemi Sameinuðu þjóðanna, heimsmarkmiðin, frið og mannréttindi á leikskóla-, grunnskóla og framhaldsskólastigi;
  • að styðja við framgang aðgerðar 8 í menntastefnu stjórnvalda, Raddir unga fólksins - virkt nemendalýðræði á öllum skólastigum;
  • að styðja við stefnu um Barnvænt Ísland og
  • að efla lýðræðis- og mannréttindamenntun.


Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, stjórnarmaður hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi; Hera Melgar, starfsemi hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi; Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra; Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi; Kristrún María Heiðberg, verkefnastjóri UNESCO-skóla á Íslandi og Óskar Haukur Níelsson og Guðni Olgeirsson, sérfræðingar í mennta- og barnamálaráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta