Hoppa yfir valmynd
22. nóvember 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Rockville borholan komin notkun í ársbyrjun 2025

Undirbúningur gengur vel við Rockville borholuna á Reykjanesi og standa vonir til að hún verði tilbúin til notkunar í janúar á næsta ári. Þetta kom fram í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lagði fyrir ríkisstjórn í morgun.

Þegar svokölluð Njarðvíkurlögn frá Svartsengi fór í sundur í febrúar á þessu ári raungerðist sú erfiða staða að Suðurnesin voru heitavatnslaus. Í kjölfarið tóku stjórnvöld forystu um leit að heitu vatni á Reykjanesi. Lagður var til 1 milljarður kr. í jarðhitaleit  á Suðurnesjum til að tryggja neyðarhitaveitu á svæðinu. Árangur átaksins  benti til þess að svonefnd Rockville borhola lofaði góðu.

Í kjölfarið var sett af stað vinna við borholuna og stóðu vonir til að hún yrði komin í notkun í lok desember. Vegna seinkunar í afhendingu á sértækum búnaði er hins vegar nú gert ráð fyrir að borholan verði komin í notkun í janúar á næsta ári. Vinna er þó í fullum gangi og er þegar er búið að setja upp spennistöð fyrir rafmagn við borstæðið, gufukatlar sem leigðir voru eru á leið til landsins og unnið er að lagningu stofnlagna. Þá er gert ráð fyrir að álagsprófunum verði lokið um áramótin.

Með Rockville borholunni til forhitunar og einni varmaskiptistöð, sem kynnt er með olíuknúnum gufukötlum, áætla sérfræðingar Verkís að hægt verði að framleiða samtals um 50 l/sek. af 80-85°C heitu vatni, sem nægir til að halda veitukerfi HS Orku frostfríu.

Um 150-200 l/sekaf 80-85°C heitu vatni þarf hins vegar til að halda húsnæði á Suðurnesjum frostfríu, og er nú unnið að undirbúningi þess að leigja fleiri gufukatla svo hægt sé að bregðast við, komi sú staða upp aftur að virkjunarinnar í Svartsengi njóti ekki við.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Mikil vinna hefur átt sér stað frá því Njarðvíkurlögnin frá Svartsengi fór í sundur síðastliðinn vetur og erum við betur í stakk búin en áður til að mæta slíkum vanda. Jarðhitaleitin sem farið var í skilaði okkur Rockville borholunni, sem komast ætti í notkun strax í upphafi næsta árs og verður þá góð viðbót við jarðhita á Suðurnesjunum. Ítarleg kortlagning verkefna og sá lærdómur sem við höfum dregið af eldgosum undanfarinna missera hefur líka skilað sínu. Þannig hefur sú ákvörðun að fergja lagnir með jarðvegslagi til að mynda skilað því að þær eru betur varðar en áður og hefur sú einangrun haldið enn sem komið er, þó hraun hafi runnið yfir Njarðvíkurlínu í þessu gosi. Þessari vinnu er þó ekki lokið og þurfa stjórnvöld, ásamt sveitarfélögum og orkufyrirtækjum að halda áfram að bæta orkuöryggi á Suðurnesjum og fylgjast grannt áfram með framvindu mála.“

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta