Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Reykjavíkurborg tekur að sér þjónustu við geðfatlaða

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar munu ganga til samninga um að Reykjavíkurborg taki að sér ábyrgð og framkvæmd á þjónustu við geðfatlaða sem Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík hefur sinnt fram til þessa. Tillaga þess efnis var samþykkt samhljóða í velferðarráði Reykjavíkur í gær. Samþykktin er í samræmi við viljayfirlýsingu sem undirrituð af félagsmálaráðherra og borgarstjóra í lok ágúst 2008.

Frá þeim tíma hafa aðilar unnið að þarfagreiningu og skilgreiningu samningsáherslna. Jafnframt hefur verið unnið að innleiðingu þjónustusamnings milli Reykjavíkurborgar og ráðuneytisins um uppbyggingu íbúðakjarna fyrir geðfatlaða sem undiritaður var samhliða viljayfirlýsingunni í ágúst 2008. Í samræmi við þann þjónustusamning hefur borgin undanfarna mánuði sett á fót átta íbúðakjarna fyrir geðfatlaða og verða tveir þeir síðustu teknir í notkun í þessum mánuði. Uppbygging kjarnanna og innleiðing þjónustu á þeim hefur tekist framar vonum, en áhersla er lögð á sjálfstæði og virkni einstaklinganna sem þar búa.

Samkvæmt fyrirhuguðum samningum milli ríkis og borgar verður þjónusta við geðfatlaða í Reykjavík veitt frá einni hendi í nærumhverfi. Markmiðið er að færa þjónustuna nær notendum, út í samfélagið og stuðla þannig að virkni fólks í eigin umhverfi. Í samvinnu við geðsvið Landspítalans verður áhersla lögð á samfélagsþátttöku og að einstaklingum gefist kostur á að fá þjónustuna heim í stað þess að fá hana á stofnunum. Áhersla verður jafnframt lögð á að geðfatlaðir geti átt kost á búsetu í einstaklingsíbúðum.  Yfirfærsla á þjónustu við geðfatlaða til borgarinnar er liður í heildaryfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Með yfirfærslunni verður nærþjónusta við alla Reykvíkinga á einni hendi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta