Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2015 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 38/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 Þann 15. apríl 2015 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 38/2015

Í stjórnsýslumáli nr. KNU15010092

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

 Þann 17. janúar 2013 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. janúar 2013, um að taka ekki til meðferðar umsókn hennar um hæli á Íslandi og að endursenda hana til Spánar.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hennar til efnismeðferðar. 

 Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

 

II. Málsatvik og málsmeðferð

 Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 20. júlí 2012 á lögreglustöðinni við Hringbraut í Reykjanesbæ. Leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann 27. júlí 2012, skilaði engum niðurstöðum. Þann 2. ágúst 2012 sendi Útlendingastofnun beiðni um upplýsingar um kæranda á grundvelli 21. gr. reglugerðar ráðsins nr. 343/2003/EB (eldri Dyflinnarreglugerð). Svar barst frá yfirvöldum á Spáni þann 7. september 2012 en þar kom fram að kærandi hafi sótt um hæli á Spáni árið 1997 og um dvalarleyfi árið 2011, en báðum umsóknum hafi verið synjað. Þann 6. nóvember 2012 beindu íslensk stjórnvöld beiðni til yfirvalda á Spáni á grundvelli 1. mgr. 16. gr. eldri Dyflinnarreglugerðarinnar um viðtöku á kæranda. Þann 6. nóvember 2012 barst svar frá yfirvöldum á Spáni þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli e-liðar 1. mgr. 16. gr. reglugerðarinnar. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. janúar 2013, var umsókn kæranda, þess efnis að henni yrði veitt hæli á Íslandi sem flóttamanni, synjað um efnismeðferð og kærandi skyldi send til Spánar. Við birtingu ákvörðunarinnar þann 17. janúar 2013 kærði kærandi ákvörðunina til innanríkisráðuneytisins.

 Þann 21. janúar 2013 óskaði kærandi eftir því að réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar yrði frestað á meðan mál hennar væri til meðferðar hjá innanríkisráðuneytinu. Með bréfi ráðuneytisins, dags. 16. júní 2014, var fallist á frestun réttaráhrifa á meðan mál kæranda væri til kærumeðferðar.

 Þann 25. mars 2015 barst kærunefnd útlendingamála tölvupóstur frá talsmanni kæranda þar sem meðal annars var óskað eftir upplýsingum um gang málsins. Meðfylgjandi var […].

 Þann 1. janúar 2015 tók kærunefnd útlendingamála til starfa, sbr. 3. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, með síðari breytingum. Allar kærur á ákvörðunum Útlendingastofnunar, sem enn biðu afgreiðslu hjá innanríkisráðuneytinu þann 1. janúar sl. og heyra til þeirra ákvarðana sem heimilt er að kæra til kærunefndar útlendingamála, verða afgreiddar hjá kærunefndinni, sem fer nú með úrskurðarvald í samræmi við 3. gr. a og 3. gr. b laga um útlendinga, með síðari breytingum. Þegar kærunefndin tók til starfa hafði innanríkisráðuneytið ekki úrskurðað í máli kæranda og mun kærunefndin því úrskurða í máli þessu.

 Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

 

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

 1. Lagarök

 Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, ásamt síðari breytingum, og ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, ásamt síðari breytingum. Auk þess gilda ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar nr. 604/2013, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Jafnframt ber að líta til ákvæða mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

 Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað því að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Þá er íslenskum stjórnvöldum heimilt að taka umsókn um hæli til meðferðar, jafnvel þó þau beri ekki ábyrgð á henni, á grundvelli 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

 Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 115/2010 um breytingar á útlendingalögum kemur fram að með 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga sé miðað við að stjórnvöldum sé eftirlátið mat og hafi heimild til að taka mál til efnismeðferðar umfram það sem leiðir af sérstökum reglum, svo sem reglum Dyflinnarreglugerðarinnar.

 2. Niðurstaða

 Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi dvalið hér á landi frá því í júlí 2012 eða í rúm tvö og hálft ár. Frá þeim tíma hefur mál kæranda verið til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum þrátt fyrir að annað ríki hafi hinn 6. nóvember 2012 samþykkt viðtöku á kæranda og umsókn hennar um hæli á grundvelli eldri Dyflinnarreglugerðarinnar. Ekkert bendir til þess að kærandi hafi átt neinn þátt í þessari töf á afgreiðslu málsins.

 Ein af forsendum Dyflinnarsamstarfsins er að þátttökuríkin geti á eins skjótan máta og unnt er ákveðið hvaða ríki teljist bera ábyrgð á umsókn hælisleitanda og komið viðkomandi til þess lands en í forsendum Dyflinnarreglugerðarinnar kemur m.a. fram að markmiðið með samevrópska hæliskerfinu hafi verið að setja fram skýra og framkvæmanlega aðferð til að ákveða hvaða aðildarríki beri ábyrgð á meðferð umsóknar um hæli. Slík aðferð skuli byggja á hlutlægum og sanngjörnum viðmiðum, bæði fyrir aðildarríkið og fyrir viðkomandi einstaklinga. Í forsendunum kemur ennfremur fram að samevrópska hæliskerfið eigi að greiða fyrir skjótri töku ákvarðanna um hvaða aðildarríki teljist bera ábyrgð, þannig að tryggður væri skilvirkur aðgangur að málsmeðferð við veitingu á alþjóðlegri vernd og til að ekki væri stefnt í hættu markmiðinu um skjóta meðferð umsókna um slíka alþjóðlega vernd (4. og 5. forsenda Dyflinnarreglugerðarinnar).

 Það er mat kærunefndar að brýnt sé að hraða afgreiðslu hælismála eins og auðið er enda kann langur málsmeðferðartími m.a. að hafa skaðleg áhrif á andlegt sem og líkamlegt ástand hælisleitenda. Ef ákvörðun Útlendingastofnunar yrði staðfest leiddi það til flutnings kæranda til annars lands þar sem hún þyrfti að hefja nýtt hælismál með enn frekari röskun á lífi kæranda og áframhaldandi óvissu.

 Að framangreindu virtu og þegar litið er á mál kæranda í heild sinni, er það mat kærunefndar að þrátt fyrir að fyrir liggi staðfesting spænskra stjórnvalda á ábyrgð þeirra á kæranda og hælisumsókn hennar, þá beri eins og hér háttar sérstaklega til, og með vísan til 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga og 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, að flytja ábyrgð á efnislegri meðferð hælisumsóknar kæranda yfir á íslensk stjórnvöld. Byggist þessi niðurstaða kærunefndar á sanngirnissjónarmiðum vegna óhæfilega langrar málsmeðferðar fyrir íslenskum stjórnvöldum í þessu tiltekna máli og er þá sérstaklega litið til þeirrar óvissu sem hún hefur verið til þess fallin að valda kæranda.

 Sá dráttur sem varð á afgreiðslu umsóknar kæranda stafaði að verulegu leyti af þörf á að leyst yrði úr ósamræmi í dómaframkvæmd varðandi tiltekin lagaatriði í sambærilegum málum. Að mati kærunefndar haggar það ekki niðurstöðunni í þessu máli. 

 Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri hina kærðu ákvörðun úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um hæli til efnislegrar meðferðar.

 

 Úrskurðarorð

 Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. janúar 2013, í máli […], fd. […], ríkisborgari […], er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn […] til efnismeðferðar.

 The decision of the Directorate of Immigration from 7 January 2013 is vacated. The Directorate of Immigration shall examinet he substance of […] application for asylum in Iceland.

 

    Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

 

  Oddný Mjöll Arnardóttir                                                             Vigdís Þóra Sigfúsdóttir                                             

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta