Fyrningarálag vegna grænna eigna
Með nýrri reglugerð, sem nú er í samráðsgátt, er lagt til að nýta skattalega hvata til þess að ná markmiðum í umhverfismálum, svo sem að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Reglugerðin felur í sér fyrningarálag á svokallaðar grænar eignir, t.d. þær sem teljast til vistvænna samgangna eða eignir sem tengjast framleiðslu á endurnýjanlegri orku.
Reglugerðardrögin fela í sér að heimilt verður að reikna sérstakt fyrningarálag af lausafé sem nýtt er í atvinnurekstri og fellur undir eftirfarandi flokka:
- Vistvænar samgöngur.
- Endurnýjanleg orka.
- Hreinsun fráveituvatns og endurnýting úrgangs.
- Sjálfbær og umhverfisvæn stýring á náttúruauðlindum
Falli eign ekki undir ofangreinda flokka þá er samt heimilt að reikna fyrningarálag ef eign telst sambærileg grænum eignum, en við mat á því þarf að uppfylla ákveðin skilyrði sem fram koma í reglugerðinni.
Markmiðin með setningu reglugerðarinnar eru:
- Að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
- Aðlögun að loftslagsbreytingum.
- Sjálfbær nýting og verndun vatns og sjávarauðlinda.
- Umskipti yfir í hringrásarhagkerfi.
- Auknar mengunarvarnir.
- Aukin vernd og endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa.
Meðal þeirra almennu skilyrða sem uppfylla þarf til að eiga rétt á fyrningarálagi eru að eign sé í formi lausafjár sem telst til fyrnanlegra eigna, að hennar sé aflað á árunum 2021-2025 til að nýta í atvinnurekstri og að fjárfestingarákvörðun um öflun eignarinnar sé ótengd skyldu eða kröfum sem kaupanda ber að uppfylla í rekstri sínum. Þá má eignin ekki valda svo umtalsverðu tjóni gagnvart öðrum markmiðum í umhverfismálum að heildar jákvæð áhrif lækki um meira en helming þess sem ella hefði orðið.
Frestur til að senda inn umsögn um reglugerðardrögin er til 2. mars næstkomandi.