Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2021
Miðvikudaginn 6. janúar 2021 rann út umsóknarfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2021, samtals 13.000 kg., sbr. reglugerð nr. 1322/2020.
Ein umsókn barst um innflutning á smurostum frá Noregi, (0406.3000) samtals 7.000 kg., og náðu umsóknir ekki tilteknu magni sem í boði var eða 13.000 kg. Úthlutað var án útboðs.
Smurostar frá Noregi 2021
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
7.000 |
Nathan & Olsen ehf |
Reykjavík, 25. janúar 2021.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu