Ný reglugerð um Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Gefin hefur verið út ný reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þar er m.a. kveðið á um skilyrði þess að veittir séu styrkir til sveitarfélaga úr sjóðnum. Athygli er vakin á því að umsóknir sveitarfélaga um styrki á þessu ári skulu hafa borist Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eigi síðar en 1. júní nk.
Fasteignasjóður hefur það hlutverk að jafna aðstöðu sveitarfélaga við uppbyggingu eða breytingar á fasteignum sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk með miklar og/eða sértækar stuðningsþarfir, sbr. 13. gr. b í lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Í reglugerðinni, nr. 460/2018, eru nánari reglur um starfsemi Fasteignasjóðs og skilyrði þess að veittir séu styrkir til sveitarfélaga úr sjóðnum. Er gert ráð fyrir að styrkir verði veittir til eftirtalinna verkefna:
- Til fjármögnunar á hlutdeild í stofnframlagi til byggingar búsetukjarna fyrir fatlaða íbúa með mjög miklar og/eða sértækar stuðningsþarfir á móti framlagi Íbúðalánasjóðs.
- Til jöfnunar á íþyngjandi kostnaði vegna langtímaleigusamninga um húsnæði fyrir fatlað fólk sem sveitarfélögin yfirtóku samhliða yfirfærslu málaflokksins 2011.
- Til stuðnings við nauðsynlegar endurbætur á eldra íbúðarhúsnæði fatlaðs fólks með verulegar þjónustu og stuðningsþarfir sem gera því kleift að búa áfram á heimilum sínum.
- Til byggingar hæfingarstöðva til að sinna lögbundnu hlutverki þeirra til hæfingar fatlaðs fólks..
- Í öðrum sérstökum undantekningartilvikum sem talin eru falla vel að hlutverki Fasteignasjóðs en sem falla þó ekki undir liði a-d hér að framan.
Nánari upplýsingar veitir Guðni Geir Einarsson á skrifstofu Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, [email protected].