Framlög úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka 2016
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2016.
Um framlögin gilda lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.Greiðslur til stjórnmálasamtaka eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. Stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5% atkvæða eiga rétt til framlaga. Það framlag skiptist hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í næstliðnum kosningum.
Greiðslur eftir alþingiskosningar árið 2013 fyrir árið 2016 koma fram í meðfylgjandi töflu.
Skipting atkvæða í Alþingiskosningunum 2013 (Upplýsingar frá Hagstofu Íslands)
Greidd atkvæði alls 193.822
Gild atkvæði alls 188.995
Auðir seðlar 4.217
Ógildir seðlar 610
Styrkir til stjórnmálasamtaka árið 2016