Kynnti sér starf Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra heimsótti í liðinni viku Vestmannaeyjar. Þar kynnti ráðherra sér m.a. starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja.
Meðan á heimsókninni stóð átti ráðherra fund með framkvæmdastjórn stofnunarinnar um stöðu hennar. Jafnframt heimsótti ráðherra Ráðhús Vestmannaeyja og fundaði með Elliða Vigfússyni bæjarstjóra og Páli Scheving Ingvarssyni, bæjarfulltrúa.
Gunnar K. Gunnarsson framkvæmdastjóri HSVE kynnti starfsemi stofnunarinnar fyrir ráðherra.