Staða forstjóra Landspítala auglýst laus til umsóknar
Heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala.
Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Nánar er kveðið á um hlutverk hans í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu. Á Landspítala starfa á fimmta þúsund starfsmenn og er spítalinn stærsti vinnustaður á Íslandi.
Forstjóri ber ábyrgð á að Landspítali starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem heilbrigðisráðherra setur. Forstjóri ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir og á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Forstjóri ræður aðra starfsmenn spítalans. Forstjóri skal hafa háskólamenntun sem nýtist honum í starfi og búa yfir reynslu af rekstri og stjórnun. Gerð er krafa um mikla samskipta- og leiðtogahæfileika.
Hæfni umsækjenda verður metin af þriggja manna nefnd sem skipuð er af heilbrigðisráðherra skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu. Skipað er í stöðuna til fimm ára í senn frá 1. október 2010. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um embættið. Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.
Upplýsingar um starfið veita Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri ([email protected]) og Sigurjón Ingi Haraldsson, skrifstofustjóri ([email protected]).
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil sendist heilbrigðisráðuneytinu, Vegmúla 3, 150 Reykjavík eða á [email protected] eigi síðar en 30. júlí 2010.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir.