Hoppa yfir valmynd
7. mars 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Sigrún Brynja Einarsdóttir er nýr ráðuneytisstjóri í menningar- og viðskiptaráðuneytinu

Sigrún Brynja Einarsdóttir 

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Sigrúnu Brynju Einarsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu til fimm ára frá og með 1. apríl næstkomandi.

Sigrún Brynja er með Candjur próf í lögfræði og alþjóðlega IMPA D-vottun í verkefnastjórnun. Hún hefur starfað sem skrifstofustjóri á skrifstofu menningar og fjölmiðla hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu frá árinu 2022.

Áður hafði Sigrún Brynja gegnt embætti skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu frá árinu 2016. Starfaði hún þar á undan sem forstöðumaður nefndarsviðs Alþingis í átta ár.

Alls bárust sjö umsóknir um embættið sem var auglýst þann 27. desember en umsóknarfrestur rann út þann 23. janúar.  Hæfnisnefnd var skipuð til að meta hæfi umsækjenda.

Sex umsækjendur voru boðaðir í viðtal og niðurstaðan eftir ráðningarviðtölin var sú að Sigrún Brynja væri hæfust umsækjenda til að taka við starfi ráðuneytisstjóra. Byggist það á sjálfstæðu mati ráðherra, að teknu tilliti til greinargerðar hæfnisnefndar, á starfsreynslu umsækjenda, menntun, forystuhæfileikum, leiðtogahæfni, frammistöðu í ráðningarviðtölum, og almennri stjórnunarreynslu.  

Skipað er í starf ráðuneytisstjóra til fimm ára.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta