Mannanafnanefnd, úrskurðir 23. janúar 2009
FUNDARGERÐ
Ár 2009, föstudaginn 23. janúar var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifs-dóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Veturliði S. Óskarsson. Neðangreind mál voru tekin fyrir:
1. Mál nr. 08/2009 Millinafn: Brúnsteð
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Millinafnið Brúnsteð er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Brúnsteð uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Brúnsteð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
2. Mál nr. 09/2009 Eiginnafn: Jólín (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Jólín (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Jólín (nf.) – Jólín (þf.) – Jólín (þgf.) – Jólínar (ef.).
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Jólín (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsendingu þess, Jólínar.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.