Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-október 2012
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu tíu mánuði ársins 2012 liggur nú fyrir. Handbært fé frá rekstri batnaði á milli ára og var neikvætt um 37 ma.kr. samanborið við 58,9 ma.kr. á sama tímabili 2011.
Tekjur reyndust 41,1 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan að gjöldin jukust um 15,6 ma.kr. milli ára.
Þetta er betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 56,1 ma.kr. Hluti af því fráviki skýrist með því að raundreifing gjalda og tekna hefur verið önnur en gert var ráð fyrir. Inni í heimildum er búið að taka tillit til fjárheimildastöðu frá fyrra ári.