Hoppa yfir valmynd
18. janúar 2024 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 63/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 18. janúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 63/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23050030

 

Kæra [...]

á ákvörðun Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 4. maí 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. apríl 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 6. desember 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 6. mars 2023 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 14. apríl 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 4. maí 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum 19. maí 2023.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna kynhneigðar sinnar, kærandi sé samkynhneigður og hafi sætt áreiti vegna þess, meðal annars af hálfu fjölskyldu sinnar.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til gagna málsins hvað málsatvik varðar, einkum viðtals síns hjá Útlendingastofnun og greinargerðar sinnar til stofnunarinnar.

Aðalkröfu sína um alþjóðlega vernd byggir kærandi á því að hann eigi á hættu að vera ofsóttur og kúgaður í heimaríki sínu vegna kynhneigðar sinnar. Kærandi sé samkynhneigður og þrátt fyrir að ekki sé ólöglegt að vera samkynhneigður í heimaríki hans sé það ekki samfélagslega viðurkennt. Hafi fjölskylda hans meðal annars afneitað kæranda vegna kynhneigðar hans og hafi faðir hans sagt að hann muni drepa kæranda komi hann aftur til Kólumbíu. Bróðir kæranda hafi einnig hótað honum ofbeldi og þá hafi systir hans hent honum út úr íbúð sinni í Ósló þegar hann hafi greint frá því hverrar kynhneigðar hann væri. Þá hafi kærandi orðið fyrir aðkasti og barsmíðum á götum úti í heimaríki. Kærandi hafi leitað til lögreglu í heimaríki eftir að ráðist hafi verið á hann en hafi fundist eins og lögreglumennirnir hafi fundist það fyndið og hafi engin skýrsla verið gerð um atvikið. Kærandi telur því að hann geti ekki nýtt sér vernd löggæsluyfirvalda í heimaríki sínu. Kærandi byggir á því að hann tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi í heimaríki og hafi ástæðu til að óttast ofsóknir og um líf sitt. Að mati kæranda liggi sú ógn staðfest í framlögðum skjáskotum af samtölum fjölskyldumeðlima hans. Þá telur kærandi að óumdeilt sé að hann hafi orðið fyrir alvarlegum og lífsógnandi hótunum/ofsóknum af hálfu almennings. Að mati kæranda feli ofsóknir þær sem hann hafi orðið fyrir í sér brot gegn banni við pyndingum og ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá byggir kærandi á því að yfirvöld í heimaríki vilji ekki koma í veg fyrir slíka meðferð á borgurum landsins sem séu samkynhneigðir.

Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að hann eigi á hættu að sæta pyndingum og ómannúðlegri meðferð í heimaríki sínu. Kærandi gerir athugasemd við mat Útlendingastofnunar á aðstæðum samkynhneigðra í Kólumbíu. Kærandi telur ámælisvert að stofnunin hafi dregið þá ályktun að hann sé ekki hluti af hópi sem flokkist sem „hinsegin aðgerðarsinnar“. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi borið að spyrja hann í viðtali nánar út í hvernig hann skilgreindi sig eða senda erindi til hans og óska eftir frekari skýringum. Þá gerir kærandi athugasemd við það að Útlendingastofnun hafi ekki gert tilraun til að skilgreina hvað felist í hugtakinu „aðgerðarsinni“. Kærandi telur að skilgreining á hugtakinu hefði getað breytt öllu um réttarstöðu hans og hvernig hún yrði túlkuð út frá heimildum um aðstæður í Kólumbíu. Kærandi bendir á að hann hafi farið ítarlega yfir það ofbeldi og aðkast sem hann hafi orðið fyrir vegna kynhneigðar sinnar. Þrátt fyrir að kærandi berjist ekki opinberlega fyrir auknum réttindum samkynhneigðra þá breyti það ekki þeirri staðreynd að hann sé aðgerðarsinni í heimaríki fyrir þeim réttindum.

Til vara gerir kærandi kröfu um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir framangreinda kröfu á því að í heimaríki bíði hans erfiðar félagslegar aðstæður. Kærandi telur að með því að senda hann aftur til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Með hliðsjón af öllu framangreindu telur kærandi að hann uppfylli skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku vegabréfi, kennivottorði og ökuskírteini. Að því virtu var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði sannað hver hann væri með fullnægjandi hætti. Að framangreindu virtu telur kærunefnd ljóst að kærandi sé kólumbískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • ACLED Dashboard: 5. janúar 2023 – 5. janúar 2023, (ACLED Dashboard - ACLED (acleddata.com), sótt 12. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 28. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
  • Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
  • BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
  • Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
  • Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
  • Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
  • Colombia: Events of 2022 (Human Rights Watch, 2023);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
  • Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 2. janúar 2024);
  • Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
  • Freedom in the World 2023 – Colombia (Freedom House, 2023);
  • Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 9. maí 2023);
  • Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
  • Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
  • More than 60 LGBT, intersex people killed in Colombia in the first eight months of 2020 (Reuters, 11. mars. 2020);
  • International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
  • Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
  • Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
  • Resolution 2673(2023) (United Nations Security Council, 11. janúar 2023);
  • Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 10. febrúar 2021);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
  • The Colombia Collaborative Project: Stress, health and wellbeing of LGBT people in Colombia (UCLA School of Law, apríl 2020);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 6. júní 2023);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary- General (United Nations, 24. mars 2023);
  • World Report 2021 – Events of 2020 (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
  • World Report 2022 – Events of 2021 (Human Rights Watch, 13. janúar 2022);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com, sótt 14. júní 2023);
  • Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, sótt 14. júní 2023) og
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org, sótt 9. júní 2023).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af Afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni komi fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og beiti barnahermönnum fyrir sig. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka.

Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionaty Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í desember 2022 hafi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) greint frá því að 78 þúsund manns hafi hrakist á flótta á árinu 2022 sem sé aukning frá árinu áður.

Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 13. mars 2020 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins. Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim var slitið árið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin tilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundið.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi framlengt umboð verkefnis sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu til 2022. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 kemur fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð Framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.

Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í. 

Í Kólumbíu eru til staðar lög sem eiga að tryggja jafnrétti og bann við mismunun en í desember 2011 voru lög gegn mismunun á grundvelli þjóðernis, kynferðis eða kynhneigðar samþykkt. Við gerð friðarsamkomulagsins við FARC var sérstaklega fjallað um ofbeldi sem beinst hafði að hinsegin einstaklingum og kveðið á um sérstakar bætur og aðgerðir til þess að koma til móts við þann hóp við framkvæmd samkomulagsins. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að tilkynnt hafi verið um lögregluofbeldi gagnvart einstaklingum vegna kynhneigðar þeirra. Jafnframt hafi verið tilkynnt um mismunun gagnvart hinsegin einstaklingum með tilliti til aðgengis að heilbrigðisþjónustu en ekki hafi verið tilkynnt um mismunun á grundvelli kynhneigðar á vinnumarkaði, fasteignamarkaði eða innan menntakerfisins. Réttindi hinsegin fólks séu tryggð samkvæmt tilskipun nr. 762 og nánar útfærð með aðgerðaráætlun kólumbískra yfirvalda fyrir árin 2019-2022. Mismunun á vinnumarkaði og í aðgengi að húnsnæði á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar er refsiverð skv. hegningarlögum landsins. Þá hafi stjórnlagadómstóll í landinu samþykkt í ágúst 2020 að ríkið skuli bera kostnað af kynleiðréttingaraðgerðum. Í skýrslunni kemur fram að aðgerðaráætlun sem samþykkt hafi verið árið 2019 fyrir árin á eftir hafi miðað að því að tryggja réttindi hinsegin fólks, m.a. borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, ásamt því að efla menntakerfið, lýðræðislega þátttöku, heilbrigðisþjónustu, atvinnu- og húsnæðismarkaðinn og styðja við íþróttaiðkun og þátttöku í menningarstarfi. Í október árið 2019 sigraði Claudia López kosningar um borgarstjórastólinn í Bógóta og varð þar með fyrsta konan og fyrsti opinberlega hinsegin einstaklingurinn til að vera kjörin í það embætti. Þrátt fyrir framangreint hafa mannréttindafulltrúar og alþjóðleg mannréttindasamtök lýst yfir áhyggjum af fordómum og ofbeldi gegn hinsegin fólki og að vernd laganna sé ekki fylgt eftir í raun. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þrátt fyrir aðgerðir til að auka réttindi og vernd hinsegin fólks hafi verið tilkynnt um ofbeldi og mismunun auk kynferðisofbeldis. Kvartanir hafi verið lagðar fram vegna framgöngu öryggissveita í þessum málum og varðandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Þá hafi frjálsu félagasamtökin Colombia Diversa tilkynnt að á tímabilinu 1. janúar til 18. ágúst 2021 hafi 39 hinsegin einstaklingar verið myrtir, þar af 26 trans einstaklingar. Þá hafi umboðsmaður rannsakað 185 morð á hinsegin einstaklingum frá árinu 2008 til 31. júlí 2021. Meirihluti fórnarlambanna hafi verið transkonur.

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 10,5% árið 2022 og minnkaði frá árinu 2021 er það var 14,3%. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum sé heilbrigðiskerfið í Kólumbíu með þeim bestu í heiminum og samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er Kólumbía í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu rekur heilbrigðiskerfið sjúkratryggingar sem beri heitið Entidades Promotoras de Salud (EPS). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli, þ. á m. í Bógóta.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi ber fyrir sig að hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til þess að hann sé samkynhneigður. Þá hafi fjölskylda kæranda afneitað honum vegna kynhneigðar hans.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu kólumbískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Kærandi hefur greint frá því að vera samkynhneigður og var það lagt til grundvallar við úrlausn málsins hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd telur ekki tilefni til að breyta því mati. Í viðtali hjá Útlendingastofnun 6. mars 2022 greindi kærandi frá því að hafa búið í Bógóta í Kólumbíu. Aðspurður um ástæður flótta frá heimaríki greindi kærandi frá því að þegar hann hafi verið í heimsókn hjá systur sinni, sem búi í Noregi, í nóvember 2022 hafi hún komið að honum með öðrum strák. Í kjölfarið hafi hún rekið kæranda af heimilinu og greint öðrum fjölskyldumeðlimum frá því hvað hafi gerst. Hafi fjölskylda hans afneitað honum og hótað honum líkamsmeiðingum ef hann snéri aftur til heimaríkis. Þá kvaðst kærandi hafa orðið fyrir áreiti í heimaríki vegna kynhneigðar sinnar af hálfu fólks sem hann hafi þekkt. Kærandi kvaðst einu sinni hafa leitað til lögreglu í júní eða júlí 2022 en það hafi verið hlegið að honum. Kærandi kvaðst ekki vera með gögn um að hafa leitað til lögreglunnar.

Í framangreindum skýrslum og landaupplýsingum kemur fram að samkynhneigðir verði fyrir nokkurri mismunun í heimaríki kæranda s.s. hvað varðar aðgengi að heilbrigðisþjónustu, atvinnu og húsnæði. Það er þó mat kærunefndar að sú mismunun nái ekki því alvarleikastigi að geta talist til ofsókna í skilningi 38. gr. laga um útlendinga. Fær það mat einkum stoð í þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa gripið til til þess að bæta stöðu þessa hóps, m.a. með setningu laga sem banni mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynferðis, aðgerðaáætlunum og vitundarvakningarherferðum um réttindi hinsegin einstaklinga. Þá hefur stjórnlagadómstóll landsins ítrekað staðfest réttindi hinsegin einstaklinga, s.s. um rétt til að fá leiðréttingu á skráðu kyni sem og skyldu ríkisins til að greiða kostnað við kynleiðréttingaraðgerðir.

Í greinargerð kæranda voru gerðar athugasemdir við að Útlendingastofnun hafi dregið þá ályktun að hann sé ekki hluti af hópi sem kallist „hinsegin aðgerðarsinnar“ og að skilgreining á hugtakinu „aðgerðarsinni“ hefði getað breytt öllu um réttarstöðu kæranda. Þrátt fyrir að kærandi berjist ekki opinberlega fyrir auknum réttindum samkynhneigðra þá sé hann aðgerðarsinni í heimaríki fyrir þeim réttindum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi aðspurður ekki vera berjast fyrir sérstökum málstað í heimaríki. Kærandi var þá spurður hvort hann væri virkur í LGBTQ+ hreyfingunni. Kærandi kvað þetta vera persónulegt fyrir sig og að hann berðist fyrir mannréttindum dagsdaglega en berðist ekki fyrir einhvern hóp. Í lok viðtalsins var kærandi aftur spurður að því hvort hann hefði verið virkur í einhverju LGBTQ+ starfi, til dæmis í gegnum samfélagsmiðla. Kærandi svaraði því neitandi og vísaði til þess að hann hafi þurft að leyna öllu. Að mati kærunefndar voru svör kæranda við framangreindum spurningum fulltrúa Útlendingastofnunar nokkuð skýr um það að hann hefði ekki lifað sem sérstakur aðgerðarsinni fyrir réttindum LGBTQ+ einstaklinga í heimaríki. Að mati kærunefndar þýðir það að vera samkynhneigður eða tilheyra LGBTQ+ ekki sjálfkrafa að viðkomandi sé aðgerðarsinni líkt og haldið er fram í greinargerð. Þá er í greinargerð ekki færð frekari rök fyrir þeirri málsástæðu að kærandi sé aðgerðarsinni og berjist fyrir auknum mannréttindum samkynhneigðra í heimaríki sínu. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi tilheyri sérstökum þjóðfélagshóp af þeim sökum.

Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leggja grunn að staðhæfingum hans um að þar til bær yfirvöld í heimaríki hafi ekki vilja eða getu til að veita honum aðstoð verði hann fyrir áreiti. Þá verður ekki ráðið af framburði kæranda að hann hafi leitað annarra úrræða sem standi honum til boða í heimaríki, t.a.m. umboðsmanns sem hafi það hlutverk að taka við kvörtunum frá einstaklingum og beri m.a. ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum. Það er mat kærunefndar að á öruggari svæðum í Kólumbíu, þ. á m. Bógóta þar sem kærandi kveðst hafa haft búsetu áður en hann yfirgaf heimaríki sitt, geti yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi íbúa. Þau gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda til þess að Bógóta sé talsvert öruggara svæði en önnur í landinu og að lög í heimaríki kæranda kveði á um bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og stjórnvöld hafi almennt framfylgt þeim lögum. Þá séu jafnframt til staðar frjáls félagasamtök, m.a. Colombia Diversa, sem vinni að réttindum hinsegin einstaklinga í landinu. Er það mat kærunefndar að yfirvöld í heimaríki kæranda séu því fær um að veita honum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Þá nær afneitun fjölskyldu hans vegna kynhneigðar hans ekki því alvarleikastigi að jafngilda ofsóknum í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Er því ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Kærandi vísar til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis vegna kynhneigðar sinnar. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að verða beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið í Bógóta, hvar kærandi kvaðst síðast hafa verið búsettur, er það mat kærunefndar að hann eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til Kólumbíu. Lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu að öllu jöfnu öflug og fagleg. Hafi þarlend stjórnvöld til að mynda gripið til aðgerða til að bæta stöðu hinsegin einstaklinga, m.a. með því að lögfesta bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og með vitundarvakningarherferðum um réttindi hinsegin einstaklinga.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærandi uppfyllir heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í greinargerð byggir kærandi á því að hans bíði erfiðar aðstæður í heimaríki.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa myndi að öðru leyti fara eftir aðstæðum í hverju máli. Í framangreindum skýrslum kemur fram að tilfelli áreitis og ofbeldis gagnvart einstaklingum vegna kynhneigðar og kynvitundar hafi verið skráð í Kólumbíu. Þá kemur fram að mismunun og fordómar séu til staðar í landinu. Hins vegar benda framangreindar skýrslur og gögn til þess að stjórnvöld verndi almennt borgara sína og til staðar sé kerfi sem veiti einstaklingum sem telja að brotið hafi verið á rétti sínum, aðstoð. Einnig eru ýmis frjáls félagasamtök starfandi í heimaríki, þau stærstu Colombia Diversa, berjast fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga og veiti þeim ýmis konar aðstoð í daglegu lífi.

Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa starfað hjá upplýsingatæknifyrirtæki í heimaríki og þar áður sem bílstjóri. Kærandi sem er þrítugur einstæður karlmaður er samkvæmt gögnum málsins almennt heilsuhraustur og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sér. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki lýst aðstæðum sem gefa til kynna að hann sé í slíkri stöðu að tilefni sé til að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærunefnd telur að félagslegar aðstæður kæranda við endurkomu séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli félagslegra aðstæðna.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að nánar tilteknum skilyrðum. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 6. desember 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Meðal annars gerir kærandi athugasemd við það mat stofnunarinnar að aðstæður samkynhneigðar í Kólumbíu séu öruggar og að yfirvöld veiti þeim hópi ekki aðstoð og vernd. Að mati kæranda hafi hann ekki fengið að njóta vafans við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun.

Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti máls kæranda og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun og er það mat kærunefndar að ekki hafi verið annmarkar á málsmeðferð máls kæranda hjá stofnuninni sem valdið geti ógildingu hennar.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans. 

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 6. desember 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst eiga ættingja í Noregi og á Spáni en væri ekki náinn þeim. Þá kvað kærandi ákvörðun um brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarna ráðstöfun í sinn garð.

Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Í ákvörðunarorðum í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi hann landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann sjálfviljugur frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson

Sindri M. Stephensen                                                                   Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta