Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2015 vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti
Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 8. október sl. um áætlaða heildarúthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2015, sbr. reglugerð, nr. 80/2001 með síðari breytingum.
Á grundvelli frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2015 nemur áætlað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna 3.348,9 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum framlög fyrirfram sem nema 60% af áætluðum framlögum ársins eða um 2.009,3 m.kr. Greiðslan er innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní.
Uppgjör framlaganna á árinu 2015 fer fram mánuðina, júlí, ágúst og september á grundvelli upplýsinga frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts frá 31. desember 2014, upplýsinga um álagningarhlutföll fasteignaskatts á árinu 2015 og upplýsinga um veitta afslætti sveitarfélaga af fasteignaskatti á árinu 2015.