Samskipti við Bankasýslu ríkisins við útboð hluta í Íslandsbanka
Ráðuneytinu hafa borist upplýsingabeiðnir um fyrirkomulag og samskipti Bankasýslu ríkisins við ráðherra meðan útboð á hlutum í Íslandsbanka stóð yfir þann 22. mars sl.
Meðfylgjandi eru þau bréf sem fóru á milli Bankasýslu ríkisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins umrætt sinn.
- Rökstutt mat Bankasýslu ríkisins vegna sölu hluta í Íslandsbanka er varða lokaverð, útboðsstærð og úthlutun til bjóðenda dags. 22. mars 2022.
- Svarbréf fjármála- og efnahagsráðherra til Bankasýslu ríkisins dags. 22. mars 2022
Árétta skal að upplýsingar um tilboð eða tilboðsgjafa voru aldrei bornar undir fjármála- og efnahagsráðuneytið. Yfirlit yfir nafngreinda kaupendur hluta barst ráðuneytinu fyrst með bréfi frá Bankasýslu ríkisins þann 6. apríl sl., en eftir því hafði verið óskað sérstaklega með bréfi ráðuneytisins dags. 30. mars sl.
Um framkvæmd sölunnar skal að öðru leyti vísað til laga um Bankasýslu ríkisins, nr. 88/2009, og laga um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, nr. 155/2012.
Umrædd gögn, sem áður hafa verið birt, eru aðgengileg hér að neðan.