Breytingar á staðgreiðslu um áramót
Breytingar verða á tekjuskatti einstaklinga og útsvarsprósentum sveitarfélaga um áramótin í kjölfar þriðja samkomulags ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Í samkomulaginu felst varanleg tilfærsla fjármuna sem nema 5 ma.kr. árlega frá ríki til sveitarfélaga í því skyni að gera þeim kleift að ná settum afkomu- og skuldamarkmiðum í gildandi fjármálaáætlun fyrir árin 2023-2027. Aðgerðin felur í sér að hámarksútsvar verður hækkað og tekjuskattur einstaklinga lækkaður jafn mikið samhliða og er því hlutlaus fyrir skattgreiðendur að því gefnu að sveitarfélög nýti sér hina auknu heimild til að hækka útsvar.
Lög nr. 90/2003 um tekjuskatt einstaklinga breytast á þann veg að öll þrep tekjuskatts lækka um 0,22 prósentustig og lög nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga á þann veg að heimild til álagningar útsvars hækkar um 0,22 prósentustig og verður því 14,74% eftir breytinguna.
Til viðbótar fyrrgreindum breytingum skal samkvæmt lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt í upphafi hvers árs hækka persónuafslátt og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna aukinnar framleiðni. Miðað er við 1% árlega aukningu framleiðni og er það mat tekið til endurskoðunar á 5 ára fresti, næst fyrir áramótin 2027-2028. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 9,6% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun persónuafsláttar og þrepamarka verður því 10,7%.
Með fyrirvara um að endanlegt meðalútsvar liggur ekki fyrir verða skattprósentur, persónuafsláttur og þrepamörk eftirfarandi árið 2023.
Skattprósentur |
2023 |
Prósenta í 1. þrepi: |
31,45% (þar af 14,67% útsvar) |
Prósenta í 2. þrepi: |
37,95% (þar af 14,67% útsvar) |
Prósenta í 3. þrepi: |
46,25% (þar af 14,67% útsvar) |
Persónuafsláttur og þrepamörk 2023 |
Á ári |
Á mánuði |
Persónuafsláttur: |
715.981 |
59.665 |
Þrepamörk milli 1. og 2. þreps: |
4.919.833 |
409.986 |
Þrepamörk milli 2. og 3. þreps: |
13.812.143 |
1.151.012 |
Með framangreindum fyrirvara verður meðalútsvar í staðgreiðslu á árinu 2023 14,67% og hækkar um 0,22 prósentustig frá fyrra ári, eða sem nemur hækkun hámarksútsvars. Við staðgreiðslu ber launagreiðendum að miða við meðalútsvarshlutfallið en þar sem öll þrep tekjuskatts einstaklinga lækka um sömu prósentu verður engin breyting á staðgreiðsluhlutföllum ársins, þ.e. samanlögðum hlutföllum tekjuskatts og meðalútsvars.
Sveitarfélög eiga skv. lögum um tekjustofna sveitarfélaga að ákveða fyrir 1. desember hvaða útsvarsprósentu þau muni leggja á á næsta ári og tilkynna fjármála- og efnahagsráðuneytinu um þá ákvörðun eigi síðar en 15. desember. Þar sem ofangreindar breytingar á hámarksútsvari, fjármögnun Jöfnunarsjóðs og tekjuskatti einstaklinga voru lögfestar 16. desember sl. var samhliða lögfest bráðabirgðaákvæði þar sem sveitarfélögum var gefinn frestur til 30. desember nk. til þess að ákvarða og tilkynna útsvarsprósentu næsta árs. Uns endanleg ákvörðun sveitarstjórna liggur fyrir er því miðað við að öll sveitarfélög hækki útsvarsprósentu sína frá því sem áður hafði verið ákveðið til samræmis við hækkun hámarksútsvars og aukna hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvarsstofni, eða um 0,22 prósentustig. Meðalútsvar er því tilgreint nú með þeim fyrirvara að það geti tekið breytingum þegar endanlegar útsvarsprósentur sveitarfélaga liggja fyrir nú um áramótin.
Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða 197.619 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldagreiðslu launþega í lífeyrissjóð. Þá munu skattleysismörk tekjuskatts, sem eru þau mörk þegar launþegi byrjar að greiða tekjuskatt til ríkisins, verða 370.388 kr. að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldagreiðslu launþega í lífeyrissjóð.
Tryggingagjald
Engar breytingar verða á tryggingagjaldi frá fyrra ári. Skiptingu þess má sjá í meðfylgjandi töflu.
2023 |
|
Almennt tryggingagjald |
4,90% |
Atvinnutryggingagjald |
1,35% |
Gjald í Ábyrgðarsjóð launa vegna gjaldþrota |
0,05% |
Markaðsgjald |
0,05% |
Tryggingagjald, samtals |
6,35% |