Skýrsla um niðurfærslu verðtryggðra fasteignalána
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að leggja fyrir Alþingi skýrslu um niðurfærslu verðtryggðra fasteignalána. Skýrslan var unnin á starfstíma síðasta þings á grundvelli skýrslubeiðnar þingmanna og fjallar um þau atriði sem þar var óskað eftir að tekin yrðu til umfjöllunar og er framsetning skýrslunnar í samræmi við það.
Fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram skýrslu um sama mál í júní 2015. Í þeirri skýrslu voru greiningar á helstu niðurstöðum höfuðstólslækkunar, byggðar á gögnum um þá framteljendur sem áttu fasteign og skulduðu vegna íbúðakaupa. Greiningin var því byggð á þeim hópi sem aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána beindist að, þ.e.a.s. heimilum sem áttu fasteign og voru með húsnæðislán á árunum 2008-2009.
Í skýrslubeiðni alþingismanna frá síðasta þingi var óskað eftir upplýsingum um dreifingu fjárhæða höfuðstólslækkunar óháð því hvort framteljendur hafi átt fasteign og hvort þeir skulduðu í íbúð sinni. Í skýrslunni sem nú er birt er því fjallað um áhrif lækkunarinnar á alla einstaklinga sem telja fram til skatts og að allar fjárhæðir og meðaltöl miði við öll heimili óháð því hvort þau áttu eignir eða skulduðu vegna íbúðakaupa.
- Skýrsla um niðurfærslu verðtryggðra fasteigna
- Skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra um lækkun höfuðstóls verðtryggðra húsnæðislána – lögð fyrir Alþingi á 144. löggjafarþingi 2014-2015 – júní 2015