Sérfræðinganefnd um gengisstyrkingu: Níu leiðir til meiri stöðugleika
Sérfræðingar sem unnið hafa að greiningu á samkeppnishæfni þjóðarbúsins í ljósi styrkingar krónunnar hafa skilað greinargerð til ráðherranefndar um efnahagsmál.
Í desember sl. ákvað ráðherranefndin að fela sérfræðingum úr forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti að greina samkeppnisstöðu þjóðarbúsins í ljósi styrkingar krónunnar.
Sérfræðingar ráðuneytanna funduðu með tólf hagsmunaðilum og greiningardeildum banka í janúar. Þann 25. janúar sl. birti fjármála- og efnahagsráðuneytið kynningarefni þessara aðila sem talið var að gæti komið að gagni í opinberri umræðu.
Almennt mat þeirra sem funduðu með hópnum var að ekki væri hægt að leita að skyndilausnum, heldur þyrfti fjölbreytta vinnu á ýmsum sviðum til að styrkja umgjörð og stuðla að meiri stöðugleika.
Helstu niðurstöður hópsins:
1. Vinnumarkaðsumbætur þarf að setja á oddinn
- Efla vinnumarkaðsumgjörð og stöðu ríkissáttasemjara og vinna eftir samkomulagi um jöfnun lífeyrisréttinda, m.a. með jöfnun launa á almennum og opinberum vinnumarkaði
2. Tímabært er að endurskoða peninga- og gengisstefnu
- Endurskoðun snúist um hvernig skapa megi stöðugra og fyrirsjáanlegra efnahagsumhverfi til framtíðar
3. Markmiðum laga um opinber fjármál þarf að fylgja eftir af festu
- Mikilvægt er að fjármálastefna hins opinbera haldi og hún sé reist á traustum forsendum
4. Ákvarðanataka og aðgerðir í málefnum ferðaþjónustunnar eru nauðsynlegar
- Ríkisstjórnin taki skýra afstöðu til stýringar, skattlagningar og gjaldtöku og samhæfi stofnanaumgjörð ferðaþjónustunnar
5. Varúðarsjóður stofnaður
- Góðar aðstæður eru til að byggja upp varúðarsjóð með auðlindatekjum, svo sem arðgreiðslum orkufyrirtækja í eigu ríkissjóðs.
- Stjórnin stofni framleiðnivettvang til að koma með tillögur um aukna framleiðni á einstökum sviðum
7. Afnám fjármagnshafta við réttar aðstæður
- Losa enn frekar um höft á útflæði á næstunni að því marki sem kostur er með hliðsjón af áætlun stjórnvalda um losun hafta og stöðu aflandskróna sem bundnar eru inni í hagkerfinu.
8. Viðbótarheimild til erlendra fjárfestinga lífeyrissjóða
- Bæta við heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis fjárhæð sem nýtanleg væri hvenær sem er innan ársins
9. Aukið aðhald í rekstri hins opinbera
- Opinber fjármál styðja ekki nægilega við hagstjórn við þær aðstæður sem nú eru uppi í þjóðarbúskapnum.
Greinargerðin var kynnt ráðherranefnd um efnahagsmál þann 6. febrúar. Samhljómur er við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og mun hún liggja til grundvallar áframhaldandi vinnu í ráðuneytunum.